námstími til stúdentsprófs.
Herra forseti. Hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson fylgist alla jafna vel með umræðunni og hefur gert sér far um að standa sig ágætlega í umræðunni um menntamálin. Mér finnst nú engu að síður að hann hefði mátt fylgjast betur með, að það er umfangsmikil vinna í gangi, samstarf milli Kennarasambandsins og menntamálaráðuneytisins. Þegar um samstarf er að ræða þá bíða menn eftir tillögum.
Þeir hópar sem hafa verið starfandi á grundvelli þess samkomulags sem gert var á sínum tíma eru að skila inn. Og að sjálfsögðu munum við fara yfir þær tillögur og síðan mun koma í ljós hvort við náum því að leggja fram frumvörp. En ég mun fara yfir það á eftir.
Spurt er:
„Hvað líður fyrirætlunum um styttingu á námstíma til stúdentsprófs?“
Hugmyndir að fækka námsárum til stúdentsprófs hafa lengi verið á kreiki hérlendis. Nýjustu hugmyndirnar má rekja til nefndar um mótun menntastefnu sem skilaði skýrslu, eins og við vitum, árið 1994 og lagði grunn að lögum um grunnskóla árið 1995 og síðan framhaldsskóla árið 1996.
Nefndin lagði þá einnig til að námstími á bóknámsbrautum til stúdentsprófs yrði styttur úr fjórum árum í þrjú jafnframt því sem árlegur kennslutími í grunnskólum og framhaldsskólum yrði lengdur.
2. febrúar árið 2006 undirritaði ég samkomulag við stjórn Kennarasambands Íslands og stjórnir félaga Kennarasambands Íslands um tíu skref til sóknar í skólastarfi. Samkomulagið felur í sér mörg verkefni sem þörf er að vinna í sameiningu og sátt skólasamfélaginu til heilla og tekur í rauninni til fleiri verkefna en þess sem tengist breytingu á námstíma til stúdentsprófs.
Nánar tiltekið sammæltust kennarar og ég um að ráðast í tíu skilgreind verkefni sem unnin verða samhliða tillögum að breyttri námsskipan til stúdentsprófs, enda hagsmunir komandi kynslóða að það verkefni sé unnið á faglegan hátt til að tryggja áfram gæði náms.
Á grundvelli þessa tíu skrefa samkomulags hefur á liðnu ári verið unnið í fjölmörgum nefndum og starfshópum. Í nefndunum og starfshópnum sitja fulltrúar helstu hagsmunaaðila, kennara, skólastjórnenda, foreldra, sveitarfélaga, háskóla, atvinnulífs og menntamálaráðuneytisins. Alls starfa í hópunum nær 100 manns.
Starfshóparnir hafa m.a. fjallað um samfellu í skólastarfi, fjölbreytileika og sveigjanleika í námskrám framhaldsskóla, grunnskóla, um kennaramenntun og lögverndun starfsheita, um námsgögn og fjarnám, um starfsnám og verknám, um nemendur á almennri braut framhaldsskóla og um náms- og starfsráðgjöf í skólum. Það er ánægjuefni að finna að mikill samhljómur er um að menn vilja auka sveigjanleika á milli allra skólastiganna.
Flestir starfshóparnir og nefndir hafa nýverið skilað tillögum til mín og aðrir gera það væntanlega nú í febrúar. Í þessu sambandi er ástæða til að draga sérstaklega fram tillögur starfsnámsnefndar sem lauk störfum síðastliðið sumar.
Menn verða að hafa það í huga að ég hafði frumkvæði að því að skipa starfsnámsnefndina til að efla og auka viðgang starfsnámsins. Við gerðum okkur grein fyrir því þegar ég skipaði þá nefnd að þær tillögur mundu hugsanlega hafa áhrif á tillögurnar sem fyrir voru í ráðuneytinu. Við urðum hugsanlega að taka tillit til þess möguleika, sem kom á daginn. Í þeirri skýrslu er lögð áhersla á jafngildingu verknáms og bóknáms og eflingu starfsnáms í framhaldsskólum. Það er þessi nýja hugsun um eitt stúdentspróf.
Lagðar eru fram mjög róttækar hugmyndir um nýskipan framhaldsskólans og endurskilgreiningu stúdentsprófsins. Skólanum verði veitt frelsi til að skipuleggja og bjóða nám í samræmi við lokamarkmið námsins, þarfir nemenda og kröfur næsta viðtökuskólastigs eða atvinnulífsins.
Nemandi ljúki náminu á þeim tíma sem nauðsynlegur er með tilliti til þessara þátta. Námið miðist við inntak fremur en tíma. Tillögur starfsmanns nefndarinnar falla vel að vinnu í ráðuneytinu í tengslum við tíu skrefa samkomulagið og Kennarasambands Íslands og fá sérstaklega umfjöllun í þeirri vinnu allri. Það er afar mikilvægt að taka tillit til þeirra tillaga sem þar liggja fyrir. Það er gert á grundvelli þeirra nefnda sem eru að vinna m.a. að nýju frumvarpi um framhaldsskóla.
Á grundvelli þessarar viðamiklu vinnu starfa nú þrjár nefndir að endurskoðun laga um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og er þess vænst að drög að nýjum lagafrumvörpum liggi fyrir innan tíðar.
Þó nokkuð er síðan að fyrstu hugmyndir um fækkun námsára til stúdentsprófs komu fram. Slíkar hugmyndir byggja á þeim þjóðfélagsbreytingum sem orðið hafa hérlendis undanfarna áratugi og birtast m.a. í lengingu skólaársins. Við vitum að grunnskólinn er búinn að lengjast um tvö ár, framhaldsskólinn um tæpt missiri.
Þessar hugmyndir verður þó ætíð að vega og meta á faglegan hátt og setja í stærra samhengi þannig að tryggðar séu umbætur í námsskipan og gæði í skólastarfi. Aukin samfella í námsefni á milli skólastiga og sveigjanleiki í skipulagi skólastarfs munu skapa nemendum fjölbreytta möguleika á að velja nám í samræmi við þarfir sínar og hæfileika og fleiri tækifæri til að ákvarða námshraðann í takt við hæfileika sína og áhuga.
Stytting námstímans er ekki markmið í sjálfu sér heldur mikilvægur valkostur nemenda á fjölbreyttum námsbrautum skólakerfisins í annars síbreytilegu þjóðfélagi, þ.e. við viljum hafa hér fjölbreytt skólakerfi sem tekur tillit til þarfa einstaklinganna hverju sinni og veitir þeim möguleika á að nýta tækifæri innan skólakerfisins.