133. löggjafarþing — 71. fundur,  14. feb. 2007.

þjóðarátak gegn lélegri umgengni um landið.

538. mál
[13:59]
Hlusta

umhverfisráðherra (Jónína Bjartmarz) (F):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir þessa ágætisfyrirspurn þar sem hún vekur m.a. máls á og vekur athygli á metnaðarfullri stefnu Framsóknarflokksins í umhverfismálum. Hv. þingmaður spyr sérstaklega um þjóðarátak gegn lélegri umgengni um landið og uppsöfnun úrgangs sem flokksþingið ályktaði um 2005 og eins þá ályktun að skerpt yrði á heimildum yfirvalda til að gera ráðstafanir gagnvart aðilum sem sýna málinu skilningsleysi.

Því er til að svara að í framhaldi af gerð landsáætlunar um meðhöndlun úrgangs 2004–2016, sem Umhverfisstofnun gaf út 2004, hafa sveitarfélög eða byggðasamlög unnið svæðisbundna áætlun um meðhöndlun úrgangs hvert á sínu svæði. Landsáætlun á að vera vegvísir fyrir sveitarfélög sem fara með framkvæmd úrgangsmála hér á landi auk þess að vera til leiðbeiningar við svæðisbundna áætlanagerð. Í svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs skal gerð grein fyrir því hvernig ná megi markmiðum stjórnvalda. Allflest sveitarfélög á landinu hafa skilað inn svæðisáætlun eða eru að vinna í því fyrir utan sveitarfélögin á Vestfjörðum.

Úrvinnslusjóður hefur starfað frá 1. janúar 2002 og er úrvinnslugjald lagt á ýmsar vörur til að greiða fyrir endurnýtingu eða förgun þeirra þegar þær verða að úrgangi. Markvisst hefur verið unnið að því að koma ónýtum ökutækjum í endurnýtingu, lagt var úrvinnslugjald á ökutæki og hefur umhverfisráðuneytið lagt áherslu á að það kerfi sé skilvirkt. Í framhaldi af álagningu úrvinnslugjalds á ökutæki hefur orðið stóraukning á innsöfnun í brotamálmi almennt. Þá hafa skil á hjólbörðum einnig aukist. Með aukinni starfsemi Úrvinnslusjóðs hafa sveitarfélög nú aðgang að þjónustuaðilum sem meðhöndla flokkaðan úrgang sé þess óskað og er sú þjónusta nú almennt nýtt af sveitarfélögum.

Á árinu 2006 var hafin innsöfnun á pappa- og plastumbúðum. Söfnun á heyrúlluplasti hefur aukist jafnt og þétt og var milli 70 og 80% selds landbúnaðarplasts safnað á síðasta ári. Gerður var samningur við LÍÚ um meðhöndlun veiðarfæra úr gerviefnum og er fyrsta árinu að ljúka og verður árangur og framhald skoðað á næstunni.

Verkefnið Veraldarvinir um hreinsun strandlengjunnar hófst á sl. ári og styrkti umhverfisráðuneytið verkefnið og á fulltrúa í stjórn þess. Um er að ræða sex ára verkefni þar sem sjálfboðaliðar koma að framkvæmdinni. Tilgangur verkefnisins er ekki einungis sá að hreinsa til heldur er áhersla líka lögð á að vekja fólk og fyrirtæki til umhugsunar um bætta umgengni við náttúru landsins.

Í átta ár hefur verið í gangi verkefni um Staðardagskrá 21 hér á landi. Starfið nær nú til um helmings sveitarfélaga í landinu og mikils meiri hluta landsmanna. Í undirbúningi er framlenging á þessu verkefni til þriggja ára og á síðustu tveimur árum hefur staðardagskrárstarf í fámennum sveitarfélögum verið eflt sérstaklega með sérstöku samkomulagi umhverfisráðuneytis og iðnaðarráðuneytis innan ramma byggðaáætlunar. Staðardagskrárstarf er hluti af því að bæta umgengni við landið og meðhöndlun úrgangs.

Þá spyr hv. fyrirspyrjandi, Kolbrún Halldórsdóttir, að því hvert sé álit ráðherra á ástandi mála að þessu leyti víða um land, m.a. á ríkisjörðum. Ég fullvissa og fullyrði, og dæmi það eftir ferðum mínum um landið, þar sem ég gef þessu sérstakan gaum, að ástand þessara mála í sveitum landsins hefur verið að batna. En betur má ef duga skal. Úrgangur sem mest ber á í óreiðu í dreifbýli er aðallega til kominn vegna flutninga þar sem frágangur er ófullnægjandi, svo sem opnar kerrur, og vegna byggingarframkvæmda við orlofshús. Þar sem gámasvæði eru ekki vöktuð er hætta á að þangað sé farið með úrgang sem ekki á heima þar. Mörg sveitarfélög hafa fært gámasvæði nálægt áhaldahúsum og reka þau nú í tengslum við þau. Mikill árangur hefur náðst í því að safna saman landbúnaðarplasti og koma því til endurnýtingar. Góður árangur hefur náðst í því að hreinsa landið af gömlum tækjum og bifreiðum. Gámavellir eru komnir í flestöll sveitarfélög og upplýsingar og fræðsla um þessi mál hefur aukist verulega og það tel ég skipta miklu máli í þessu samhengi. Hvað ríkisjarðir varðar þá eru úrræði varðandi mál er varða lélega umgengni þar, eins og á öðrum jörðum, á hendi viðkomandi sveitarfélaga. Berist landbúnaðarráðuneytinu fregnir eða ábendingar um slæma umgengni á ríkisjörðum er gripið inn í til að koma málinu í réttan farveg.

Ég ætla svo að bíða seinni ræðutíma míns, frú forseti, til þess að svara spurningunni um hvað tillögur ráðherra hafi fram að færa til að ná fram úrbótum svo um muni.