þjóðarátak gegn lélegri umgengni um landið.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að taka fram að þessi ákveðni liður, í mjög metnaðarfullri stefnumörkun og í ályktunum Framsóknarflokksins í umhverfismálum almennt, er mjög lítill. Þar er margt annað mjög metnaðarfullt að finna.
Ég vil hins vegar árétta að ég held að hugsunin, þegar þessi ályktun var samþykkt á flokksþingi, hafi ekki verið sú að Framsóknarflokkurinn, undir sínum merkjum, blési í einhvern herlúður um það að nú færu allir út að safna rusli — það var ekki þjóðarátak í þeim skilningi. Ég ætla að með því að nota orðið „þjóðarátak“ í ályktunum séu menn að leggja línuna um það hvar þeir vilji sjá áherslur í viðkomandi ráðuneyti.
Það má vera ljóst af fyrri ræðu minni, frú forseti, að við höfum komið víða við. Efnt hefur verið til samstarfs með landsáætlun við sveitarfélögin, við frjáls félagasamtök og ég held að þetta gerist langbest þannig að menn séu að leita sér að samstarfsaðilum en allir séu að vinna að sama markmiðinu.
Ég hafði orð á því í fyrri ræðu minni að ég þykist sjá mun. Ég tók sérstaklega eftir því þegar ég var á ferðinni í sumar í Norðvesturkjördæmi — og þá er ég ekki að halda því fram að það sé munur á milli kjördæma — að þar höfðu ákveðin sveitarfélög verið að taka saman í átaki, í samstarfi við þá aðila sem gátu flutt alls konar bílflök og drasl. Búið var að hrúga þessu upp og svo var beðið eftir því að þetta yrði flutt sem brotajárn í burtu. Ég sé mun, ég sé verulegan mun, en ég ætla ekki að ganga svo langt, frú forseti, að þakka það alfarið Framsóknarflokknum — og ég er viss um að Framsóknarflokkurinn og Vinstri grænir geta átt um þetta mjög gott samstarf.