133. löggjafarþing — 71. fundur,  14. feb. 2007.

aflagning dagabátakerfisins.

246. mál
[14:09]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Magnús Þór Hafsteinsson) (Fl):

Virðulegi forseti. Hér í þessum sal árið 2004, nánar tiltekið í maí 2004, var tekin sú ákvörðun af meiri hluta þingmanna, að undirlagi fyrrv. hæstv. sjávarútvegsráðherra, Árna M. Mathiesens, að leggja af hið svokallaða dagakerfi smábáta. Þessi flokkur fiskiskipa landsmanna var í staðinn settur í kvóta. Þetta dagabátakerfi hafði verið við lýði í mörg ár. Við í þingflokki Frjálslynda flokksins lögðumst mjög eindregið gegn því að kerfið yrði lagt af því að við töldum að það hefði marga góða kosti í för með sér, ekki síst fyrir sjávarbyggðir landsins.

Það duldist náttúrlega engum sem fór um landið að þessum bátum fylgdi mikið líf og fjör og mikil vinna, sérstaklega yfir sumartímann en einnig á öðrum árstímum. Það var hægt að færa margar góðar röksemdir fyrir því að þessi atvinnurekstur styrkti mjög byggð í hinum minni sjávarbyggðum allt í kringum landið og þá kannski ekki síst í kjördæmi núv. hæstv. sjávarútvegsráðherra, Einars Kristins Guðfinnssonar.

Það fór nú svo að því miður var þetta kerfi lagt af í staðinn fyrir að hlúð yrði að því og það þróað frekar. Í stað þess að setja um það skýrari reglur, sem var hægur vandi að gera þó að menn vilji nú reyna að snúa út úr því og koma sér undan því á einhverjum undarlegum flótta, hefði vel verið hægt að hlúa að þessu kerfi — ekki síst, virðulegi forseti, með tilliti til atvinnustigsins í hinum minni sjávarbyggðum landsins.

Ég held að flestir sem fylgjast með sjávarútvegi hafi gert sér grein fyrir því hver þróunin hefur orðið síðan þessi lög voru sett, síðan þessir svokölluðu dagabátar voru settir í kvóta. Gríðarleg samþjöppun hefur orðið í smábátakerfinu. Fjölmargir þessara báta hafa verið seldir, þeir hafa horfið úr rekstri, þeir eru ekki lengur þau atvinnuskapandi tæki sem þeir voru hér áður fyrr. Bátarnir hafa líka flust til, þeir hafa færst frá mörgum byggðum, margar byggðir hafa orðið að sjá á eftir bátum sínum, hafa orðið að sjá á eftir góðum viðskiptavinum sem komu kannski í heimsókn þegar vel gaf á nálægum miðum á vissum árstímum og annað þar fram eftir götunum. Ég hygg að hæstv. sjávarútvegsráðherra, Einar Kristinn Guðfinnsson, geri sér fullvel grein fyrir því hvað ég er hér að tala um.

Fyrirspurn mín til hans hér í dag, virðulegi forseti, er þessi: Telur ráðherra að aflagning dagabátakerfisins árið 2004 hafi orðið sjávarbyggðum landsins til góðs?