133. löggjafarþing — 71. fundur,  14. feb. 2007.

aflagning dagabátakerfisins.

246. mál
[14:19]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Það er náttúrlega ljóst að við það að dagakerfið var aflagt breyttist margt og mér finnst margs að sakna úr því kerfi.

Í fyrsta lagi var handfæraaflinn þannig að hann nýttist oft byggðum vítt og breitt um landið vegna þess að bátarnir fylgdu á eftir fiskigöngunum sem byrjuðu iðulega eins og t.d. fyrir vestan, í Breiðafirði, og svo austur um og enduðu á Norðurlandi og jafnvel Norðausturlandi.

Það sýndi líka talsvert fiskgengdina og það sýndi aflasamsetninguna fyrir utan það að mikið líf varð í þeim byggðum sem fengu þessa kerfis notið. Ég tel að það hafi verið mistök, hæstv. forseti, að fella þetta kerfi niður og það hafi í raun og veru skemmt fyrir okkur, bæði varðandi byggðirnar og eins upplýsingar um veiðina.