laun sjómanna og lífskjör á landsbyggðinni.
Virðulegi forseti. Þegar tekist var á um hagsmuni smábátanna var uppi hörð gagnrýni á að fiskveiðiréttur smábátanna yrði aukinn. Margir héldu því fram að landsbyggðin og þær byggðir sem byggðu afkomu sína mest á smábátaútgerðinni væru með því dæmdar til fátæktar. Ég var í þessu útvarpsviðtali og hef síðan margoft haldið því fram að raunin hafi orðið allt önnur. Fiskveiðistjórnarkerfi smábátanna hefur reynst mjög verðmætt. Það hefur borgað til að mynda sjómönnum sem í því starfa í mörgum tilvikum a.m.k. góð laun, góð lífskjör. Ég hef margoft sagt það og viljað verja fiskveiðistjórnarkerfi smábátanna. Ég tel að það skipti miklu máli. Ég hef reynt að útskýra að það er ekki kerfi sem er dragbítur á lífskjör, öðru nær. Það hef ég margoft sagt.
Hv. þingmaður var áðan að hneykslast á því að við teldum það ekki okkar hlutverk sem stjórnvalds eða löggjafarvalds að hlutast til um kjarasamninga sjómanna og útvegsmanna. Ég hélt að það væri almennt ekki skoðun í þjóðfélaginu að löggjafarsamkoman ætti að grípa þar inn í. Í gildi eru frjálsir kjarasamningar og það væri síðasta úrræðið að löggjafarsamkoman gripi inn í, þ.e. þegar sérstök neyð væri. Ég held að það séu mjög sérkennileg skilaboð, sem ég vona að séu ekki skilaboðin frá Frjálslynda flokknum, að taka samningsréttinn af útgerðarmönnum og sjómönnum smábátanna. Ég held að samningsrétturinn hljóti að eiga að vera þar.
Ég tek síðan undir það sem sagt var varðandi leiguna og þátttöku sjómanna í kvótakaupum. Ég hef verið mjög gagnrýninn á það. Við eigum að taka á því. Það er óeðlilegt að sjómenn þurfi að taka þátt í kvótakaupum. Við eigum að reyna að skipa þeim málum þannig með lögum að reynt sé að koma í veg fyrir að það eigi sér stað.