vetnisrannsóknir og eldsneyti.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. iðnaðarráðherra ágæt svör og þeim sem hafa tekið þátt í umræðunni. Nýverið hefur okkur borist mjög neikvæð skýrsla varðandi gróðurhúsaáhrif í heiminum og því er virkilega ástæða til að ræða þessi mál og hraða þeim eins og kostur er. Ég tel líka rétt að skoða alla valmöguleika varðandi vistvæna og lífræna framleiðslu. Rétt er að benda á að í Bandaríkjunum er framleidd um ein milljón lítra af lífrænu bensíni eða etanóli og ESB hefur nú þegar sett af stað það ferli að bensín verði blandað etanóli.
Ég þakka fyrir umræðuna, frú forseti, og hvet ráðherra til að halda málinu gangandi.