133. löggjafarþing — 71. fundur,  14. feb. 2007.

samgöngubætur á Vestfjörðum.

537. mál
[15:46]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þarf ekki annað en að vísa til samþykktar Fjórðungssambands Vestfjarða sem barst okkur þingmönnum í dag. Það fagnar samgönguáætluninni og þeim áformum sem í henni eru um vegabætur á Vestfjörðum, þar á meðal áformum um jarðgöng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Það er nægilegur rökstuðningur fyrir mig.