samgönguáætlun fyrir árin 2007--2018.
Hæstv. forseti. Ég undrast nokkuð þá nýbreytni sem hér á að verða. Það hefði verið eðlilegt að það hefði komið fram hvaða rök eru fyrir því að menn vilji frekar ræða þessi mál hvort í sínu lagi.
Ég held að flestir þingmenn hafi gert ráð fyrir því að þessi mál yrðu rædd hér saman og mér sýnist á öllu að umræðan um málið í heild muni fara fram við þá umræðu sem fer fram um hið fyrra mál.
Það er alveg sama hvort málið er rætt á undan hvað þetta varðar vegna þess að þingmenn horfa á þessi mál í heildina. Ég tek líka undir með hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni, það er mjög undarlegt að mótmælin komi ekki fram í þingsal og af hvaða ástæðum þau eru uppi. Að hæstv. forseti úrskurði um þetta mál vegna þess að einhverjir hafi komið til hans athugasemdum er mér ekki nóg vegna þess að þær athugasemdir hafa ekki komið fram í þingsal.
Mér finnst mjög eðlilegt þegar menn fara eftir þingsköpunum í þessu sambandi að það sé þá gert með þeim hætti að allir þingmenn geti fylgst með og viti hvers vegna menn vilja ekki hafa þann hátt á sem verið hefur fram að þessu.