133. löggjafarþing — 72. fundur,  15. feb. 2007.

samgönguáætlun fyrir árin 2007--2018.

575. mál
[11:29]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Forseti vill taka það skýrt fram út af orðum hv. þingmanna hér að hann hélt fund með þingflokksformönnum klukkan korter fyrir fjögur síðdegis í gær þar sem samið var um fyrirkomulag á þessari umræðu. Þar komu ekki fram nein slík andmæli sem hér eru höfð uppi. Forseti tekur þetta skýrt fram.