rannsókn á bankakostnaði og samkeppnishindrunum.
Herra forseti. Þegar ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins tók ákvörðun um að einkavæða og selja báða bankana samtímis vöruðum við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs við því. Það væri þá a.m.k. nóg að einkavæða og selja annan en halda hinum í þjóðareign. Nei, þá urðu þeir að skipta jafnt. Framsóknarmenn urðu að fá einn fyrir sína menn og Sjálfstæðisflokkurinn hinn fyrir sína. Það voru ekki hagsmunir þjóðarinnar sem þar réðu.
Íbúðalánasjóður átti að fara sömu leið og við hér í þingsal munum hástemmdar yfirlýsingar fyrrverandi forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins, Halldórs Ásgrímssonar, eða fyrrverandi viðskiptaráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, sem enn þá er hugmyndafræðingur flokksins, um að eitt brýnasta verkefnið fyrir fjármálalífið í landinu væri að einkavæða og selja Íbúðalánasjóð. Gegn þessu börðumst við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Ég man að Félag fasteignasala barðist mjög ötullega fyrir því að Íbúðalánasjóður fengi að halda velli og framsóknarmenn voru beygðir í málinu og þorðu ekki að einkavæða Íbúðalánasjóð en viljinn var svo sannarlega fyrir hendi eins og við munum í orðum fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins, Halldórs Ásgrímssonar, bæði hér og annars staðar.
Já, það er virkileg þörf á að setja bönkunum og fjármálalífinu skorður þannig að hagsmunir almennings, hagsmunir fólksins í landinu, hagsmunir atvinnulífsins í landinu séu þar í forgangi, ekki bara hvernig bankarnir geti grætt á þeim heldur líka hvernig þeir geti þjónað þeim. Þetta held ég að sé það mikilvægasta sem við þurfum að berjast fyrir þegar við tökum við í ríkisstjórn, að rétta hag neytenda, almennings í landinu gagnvart bankakerfinu. (Gripið fram í.)