samgönguáætlun fyrir árin 2007--2018.
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður nefndi það sem ég var að segja í ræðu minni en ég hef haldið því fram að eðlilegt væri að menn gerðu samanburð á því hvar þjóðvegur 1 ætti að liggja um Skagafjörð á því svæði sem ég fór þar yfir. Ég benti á að þá mundi sá þjóðvegur liggja áfram í gegnum Blönduós. Hann lægi nær Skagaströnd en hann annars mundi gera, hann mundi liggja í gegnum Sauðárkrók, nær Hofsósi og Hólum. Hv. þingmaður hafði mestar áhyggjur af því að þá dytti verslun í Varmahlíð niður. Vissulega er það svo að lega þjóðvegarins hefur áhrif á möguleika til verslunar en hv. þingmaður virtist ekki hafa áhyggjur af því þegar hann krafðist þess að styttingin sem færir veginn frá Blönduósi yrði gerð sem allra fyrst. Mér finnst ástæða til að nefna þetta hér.
Hv. þingmaður kom því til skila með penum hætti að hann hefði orðið úti á Kili ásamt félaga sínum. Það hefur áður gerst að menn hafi orðið úti þar. Mig langar, með leyfi hæstv. forseta, að vitna í fyrsta erindi Áfanga eftir Jón Helgason, en þar stendur:
Liðið er hátt á aðra öld;
enn mun þó reimt á Kili,
þar sem í snjónum bræðra beið
beisklegur aldurtili;
skuggar lyftast og líða um hjarn
líkt eins og mynd á þili;
hleypur svo einn með hærusekk,
hverfur í dimmu gili.