133. löggjafarþing — 72. fundur,  15. feb. 2007.

samgönguáætlun fyrir árin 2007--2018.

575. mál
[19:28]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Frammíkall hv. þm. Halldórs Blöndals um að skuggagjöld séu tóm vitleysa, ég get algerlega tekið undir það. Þó að við tölum um Hvalfjarðargöngin í þessu samhengi, þá bendi ég á að ríkisendurskoðandi skoðaði nú einmitt fjármögnun Hvalfjarðarganga og komst að þeirri niðurstöðu að það væri einhver dýrasta fjármögnun sem um getur. Ég er ekki hissa á því vegna þess að þeir sem lánuðu þar í hafa aldrei grætt á neinu meira.

Þess vegna á alls ekki að setja þetta í samhengi við það hvort einkaaðilar eru fengnir til að vinna verkefni. Auðvitað er hægt að fjármagna verkefnin úr ríkissjóði þó einkaaðilar séu fengnir til að vinna verkefnin. Þó það nú væri, um það er ekki deilan.

Það sem gerðist hins vegar þegar menn voru að fara í Hvalfjarðargöngin var að enga peninga eða stuðning af fjárhagslegu tagi var að hafa úr ríkissjóði. Eina leiðin til að fara í það verkefni var sú sem farin var. Því miður lentu menn í því að þurfa að fara gríðarlega dýra leið í fjármögnuninni en ef menn hefðu verið svolítið skynsamari á þeim tíma hefðu þeir veitt ríkisábyrgð til að leita eftir lánsfé til að fjármagna það verk og þá hefðu þau göng orðið miklu ódýrari en þau urðu í raun og veru. En það hefðu getað verið sömu aðilarnir sem unnu verkið, eða Spölur eins og hann gerði það.

Við erum því ekki að deila um hlut einkaaðila í slíkum framkvæmdum heldur er fjármögnunin með skuggagjöldum það sem mig langar til að hlusta á betri rökstuðning fyrir en ég hef fengið hjá hv. þingmanni.