samgönguáætlun fyrir árin 2007--2018.
Frú forseti. Ég hef alltaf gert mér grein fyrir því, um svo fjárfrekar framkvæmdir sem jarðgöng eru, að erfitt er að ákveða að ráðast í göng með mjög löngum fyrirvara. Nú var það svo að við á Alþingi urðum sammála um að göng sem ekki voru nefnd fyrir fjórum árum, Bolungarvíkurgöngin, skyldu ganga fyrir og var það stutt þeim rökum að veðrátta hefði breyst og aðstæður svo að vegfarendur sem um veginn færu væru í bráðri hættu. Þar sem við getum einungis sett takmarkaða fjármuni í jarðgöng verð ég að una þeirri niðurstöðu að Bolungarvíkurgöngin hafi verið látin ganga fyrir og ég hygg að um það sé breið samstaða á þinginu.
Á hinn bóginn er í mínum huga enginn vafi á því að Norðfjarðargöngin koma þar næst. Við getum rifjað það upp eins og hv. þingmaður veit, af því að hann er þingmaður þessa kjördæmis, að fyrir allnokkrum árum bilaði bremsa í mjólkurbíl uppi í brekkunum fyrir ofan Eskifjörð og bílstjóranum tókst að aka bremsulausum bíl niður í sjó án þess að skaða nokkurn mann, hvorki sjálfan sig né aðra, og þótti ganga kraftaverki næst. En ekki er alltaf hægt að treysta slíku og við vitum að vegurinn er háskalegur íbúum ef eitthvað kemur fyrir. Hann liggur fyrir ofan íbúðarbyggðina og göngin eru náttúrlega barn síns tíma og standast ekki neina staðla og engar kröfur sem gerðar eru í dag um þungaflutninga, hvað þá leið til sjúkrahúss eins og nú er komið.