133. löggjafarþing — 73. fundur,  19. feb. 2007.

vaxtarsamningur fyrir Norðurland vestra.

[15:26]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka þessa fyrirspurn sem fjallar um mál sem er einmitt til vinnslu og athugunar í iðnaðarráðuneytinu um þessar mundir, vaxtarsamningur fyrir Norðurland vestra. Þetta er svæði sem stendur mjög höllum fæti eins og hv. þingmaður nefndi og við þurfum að taka virkilega vel á.

Reyndar er það svo að þau drög að vaxtarsamningi sem liggja fyrir eru, að því er ég ætla, ágæt og árangursvænleg svo langt sem þau ná. En það er alveg rétt sem kom fram að þess var farið á leit að reynt yrði að fá meira fjármagn inn í þennan samning, ekki aðeins af hálfu ríkissjóðs heldur einnig að fá meiri þátttöku samtaka sveitarfélaga og fyrirtækja í þeim vaxtarsamningi. Við fengum þessa ályktun og við höfum fengið samsvarandi erindi frá fleiri aðilum og að sjálfsögðu var undirritun samningsins slegið á frest og haldið áfram að vinna að málinu því þetta er mjög brýnt. Fyrir liggur að þarna eru margvísleg vandamál sem þarf að taka á. Við höfum ekki enn þá leyst þetta, enda hefur ekki verið ákveðið hvenær samningurinn verður undirritaður en ég fullvissa hv. þingmenn um að málið er í alvarlegri athugun og vinnslu.