133. löggjafarþing — 73. fundur,  19. feb. 2007.

kjaradeila grunnskólakennara.

[15:32]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. menntamálaráðherra út af grunnskólum landsins. Hæstv. ráðherra sagði í viðtali við Ríkisútvarpið á fimmtudaginn í síðustu viku að hún teldi að stefndi í verkföll í grunnskólum landsins og þá má rifja það upp að fyrir tveimur árum setti ríkisstjórnin lög á kjaradeilu grunnskólakennara. Ríkisstjórnin rak þá aftur til starfa hundóánægða inn í skólana og síðan þá hefur verið mikil ólga í grunnskólum landsins. Núna er hún að brjótast upp á yfirborðið og teflir í mjög alvarlega stöðu. Það er undiralda í skólunum og meðal kennaranna og þeir tala sjálfir um hópuppsagnir. Hæstv. ráðherra talar um að stefni í verkfall. Ég vildi því spyrja hæstv. menntamálaráðherra hvort hún hefði komið að málinu, hvaðan hún hefði þær upplýsingar að það stefndi í verkfall að hausti og til hvaða ráða hæstv. ráðherra vill grípa. Hún ber ábyrgð á menntun barna í landinu, og ekki síst út af því að ríkisstjórnin rak kennarana hundóánægða til starfa fyrir tveimur árum hefur síðan blasað við að í óefni stefndi í skólunum. Nú er að sjóða upp úr, grunnskólakennarar eru mjög óánægðir með störf sín og kjör. Það gefur augaleið og hæstv. ráðherra hefur staðfest það með því að segja að hún telji að verkföll séu í uppsiglingu.

Þá vildi ég nefna það að í skýrslu OECD sem kom út fyrir nokkrum dögum kemur fram að Íslendingar eru varla miðlungar í menntun. Kemur auk þess fram að fimmtungi skólabarna líður illa og er mjög einangraður. Þetta er mjög alvarleg staða og afleit og hæstv. ráðherra ætti að bregðast einhvern veginn við því um leið og hún tekur utan um þetta ástand sem er að skapast í skólunum og getur orðið til þess að mikið atgervi í kennarastéttinni fari út úr skólunum í haust með mjög alvarlegum afleiðingum fyrir skólastarf í landinu þannig að skólarnir verði í annað sinn á tveimur árum lamaðir vegna deilna um kjör kennara.

Á því ber ríkisstjórnin ábyrgð. Hún skammtar sveitarfélögunum tekjustofnana. Hún rak kennarana með lagasetningu aftur til starfa. Hæstv. ráðherra verður að koma að málinu í þetta skipti og reyna að koma í veg fyrir að í sama óefni stefni.