133. löggjafarþing — 73. fundur,  19. feb. 2007.

samgönguáætlun fyrir árin 2007--2010.

574. mál
[16:17]
Hlusta

Kristján L. Möller (Sf):

Hæstv. forseti. Sú tillaga til þingsályktunar sem við ræðum nú er svokölluð stutta áætlun eða frá 2007–2010. Í stuttum andsvörum hafa menn tekist á um trúverðugleika þessarar áætlunar með tilliti til fyrri reynslu en ég ætla ekki að gera meira úr því hér, virðulegi forseti, heldur segja það eitt að Samfylkingin hefur sagt það og formaður okkar hefur boðað það á fjölmörgum fundum út um allt land, að verkefni á næsta kjörtímabili sé stórátak í samgöngumálum. Ég held að það sé kannski líklegast, virðulegi forseti, að sú samgönguáætlun sem hér er boðuð með töluvert auknu fé komist til framkvæmda ef Samfylkingin kemst til valda, miðað við það sem við höfum sagt að ekki er hægt að gera allt í einu. Það er ekki hægt að fara líka í byggingu álvers, stórstækkun í Straumsvík eða Helguvík, byggja Landspítala og annað, enda styður hæstv. samgönguráðherra það og telur að þá þurfi að skera annað niður.

Virðulegi forseti. Það er sannarlega þannig að framlag til vegamála, til vegagerðar — ég ætla bara að halda mig við vegagerðarþáttinn núna — sem hlutfall af landsframleiðslu hefur lækkað frá árinu 1970 úr 1,7% niður í 0,9% árið 2005. Þetta er framlag til vegamála sem hlutfall af landsframleiðslu.

Á sama tíma eða frá 1995, frá upphafsári núverandi hæstv. ríkisstjórnar, hefur skattheimta og tekjur ríkissjóðs af umferð og bílainnflutningi aukist úr 3,7% árið 1995 sem hlutfall af landsframleiðslu í 4,8% árið 2005. Þetta er á því ári sem við erum að tala um að heildartekjur ríkissjóðs, skattheimta ríkissjóðs af bílainnflutningi og bílaumferð væru tæpir 50 milljarðar kr. Á því ári runnu einungis 14 milljarðar til Vegagerðarinnar. Þetta sýnir í hnotskurn, virðulegi forseti, hvers vegna við þurfum að fara í stórátak í samgöngumálum. Það er vegna þess að það hefur ekki verið veitt nægjanlega mikið fé til vegamála sennilega flestöll árin sem ríkisstjórnin hefur setið, fyrir utan stórar og miklar áætlanir sem stundum hafa komið fram, t.d. á kosningaárunum 1999 og 2003, en voru svo skornar niður árin þar á eftir.

Má ég líka, virðulegur forseti, á þeim stutta tíma sem ég hef, minna á aukna skattheimtu þegar breytt var úr þungaskatti yfir í olíugjald. Eins og fram kom í umræðum um langtímaáætlun og ég kem kannski að því síðar, þá voru tölur um selda lítra af olíu rangar, viljandi eða óviljandi, svo munaði 50 millj. lítra og tekjur ríkissjóðs eingöngu af því eru um það bil 2 milljarðar kr. og þar að auki 410 millj. í virðisaukaskatt. Og til að hafa sagt það í ræðu minni, virðulegi forseti, þá hefur Vegagerðinni verið falin umsjón og fjármögnun á t.d. ferjusiglingum, áætlunarflugi til nokkurra staða úti á landi, sérleyfi á landinu, öryggismálum, reiðvegum og öðru sem má koma upp í 1,5 milljarða kr. sem eru gjaldaleiðir Vegagerðarinnar. Hæstv. samgönguráðherra leiðréttir mig þá á eftir ef einhverjir markaðir tekjustofnar hafa komið til Vegagerðarinnar vegna þess þessara þátta. Það þýðir ekkert fyrir hæstv. samgönguráðherra að snúa út úr og spyrja hvort sá sem hér stendur sé þá á móti þessum þáttum. Nei, ég er það ekki. (Samgrh.: Það mætti halda það.) Ja, það mætti halda það og hæstv. ráðherra getur dregið þá ályktun sem honum sýnist en ég spyr hæstv. ráðherra: Er hann ánægður með að þessar gjaldaleiðir séu komnar inn, án tekjuliðar miðað við það sem ég er búinn að segja áður um skattinnheimtuna af bílainnflutningi og umferðarnotkun? Á mannamáli þýðir þetta að það er minna fjármagn, það eru minni peningar til framkvæmda sem æpa og kalla á okkur út um allt land, jafnt á landsbyggð sem á höfuðborgarsvæði.

Virðulegi forseti. Það er líka svo að samfara mikilli bílanotkun hefur krafan um vetrarþjónustu verið aukin mjög og menn hjá Vegagerðinni hafa talið að ekki sé ætlað nægilegt fé til þess. Og auðvitað eykst mjög þörfin á viðhaldi á vegum og þá sérstaklega vegna þess að strandsiglingar hafa verið lagðar niður og allir flutningar eru komnir upp á vegina, allir þungaflutningar sem auðvitað stórskemma vegina. Þess vegna er það röng stefna hjá núverandi ríkisstjórn að fara ekki að tillögu Samfylkingarinnar um að taka upp strandsiglingar á ný með eða án útboðs og með eða án peningameðgjafar frá ríkissjóði vegna þess að það mundi spara stórt í öðrum málum.

Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem hæstv. ráðherra sagði. Ég er alveg sannfærður um að þjóðin vill átak í vegamálum og það kallar á okkur út um allt land. Þess vegna er það eins og ég sagði í upphafi máls míns að við í Samfylkingunni með formann flokksins í broddi fylkingar höfum greint frá því hvernig Samfylkingin vill sjá samgönguátak til næstu átta ára sem ætti að hefjast strax á næsta ári.

Virðulegi forseti. Í þeim stutta tíma sem ég hef nú í fyrri ræðu minni ætla ég að ræða annars vegar um þá miklu umferðarteppu sem er á höfuðborgarsvæðinu á mestu álagstímum dagsins vegna mikillar aukningar bíla og þess að almenningssamgöngur eru því miður allt of lítið notaðar á höfuðborgarsvæðinu og að hins vegar að á mörgum stöðum úti á landi er þetta spurning um hvort menn komist frá einum stað til annars. Mér finnst oft best að taka sem dæmi veginn yfir til þess fallega byggðarlags Vopnafjarðar en sá vegur verður ekki kláraður og Vopnafjörður ekki kominn í eðlilegt vegasamband fyrr en sennilega árið 2010. En þannig er, virðulegur forseti, að á vorin þegar þungatakmarkanir eru á veginum þá er ekki hægt að flytja framleiðsluafurðir sem mest eru unnar á Vopnafirði, þ.e. fisk, frá bænum vegna þungatakmarkananna. Mér finnst í rauninni, virðulegi forseti, að ríkisstjórn með forsætisráðherra í broddi fylkingar ætti að biðja Vopnfirðinga og ýmsa aðra aðila úti á landsbyggðinni afsökunar á því að vegir skuli ekki vera orðnir betri en raun ber vitni núna, árið 2007. Niðurgrafnir vegir, handónýtir þegar frost er að fara úr jörðu og ekki hægt að fara um þá, ég tala nú ekki um það sem fjallað er um í umferðaröryggisáætlun en þar eru ágætismarkmið eins og t.d. með stórgrýti og annað slíkt meðfram vegum. Mér er aftur hugsað til vegarins til Vopnafjarðar.

Virðulegi forseti. Það er erfitt að fara í gegnum þetta á aðeins átta mínútum og þess vegna mun ég fara betur yfir þetta í seinni ræðu minni og þá sérstaklega yfir hluti sem snúa að mínu kjördæmi. Þá mun ég ræða hina miklu einkaframkvæmd Vaðlaheiðargöng sem á að fara í og ég styð heils hugar og sem auðvitað á að tengja við lengingu flugvallarins á Akureyri, og hina löngu tímabæru framkvæmd við ný Norðfjarðargöng sem má segja að séu á svokölluðum Ó-vegi, þó að nafnið byrji ekki á ó, stórhættulegur vegur og svo þær vegaframkvæmdir sem nauðsynlegar eru til þess að koma vegasambandi til ýmissa staða úti á landi og í mínu kjördæmi inn í nútímann. Að þessu mun ég koma í seinni ræðu minni, þá mun ég fara betur yfir þessi atriði. En að lokum vil ég ítreka, virðulegi forseti, að það er æpandi þörf á miklum framkvæmdum í samgöngumálum. Það veitir sannarlega ekki af því að gera eins og gert er í þessari áætlun og þyrfti sennilega meira til og það er m.a. vegna þess að mörg undanfarin ár hefur ekki nægjanlegt fé verið veitt til vegamála eins og ég hef gert að umtalsefni.