133. löggjafarþing — 73. fundur,  19. feb. 2007.

samgönguáætlun fyrir árin 2007--2010.

574. mál
[17:08]
Hlusta

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þó að margt hafi komið hér fram á fimmtudaginn þegar við ræddum langtímaáætlunina langar mig samt sem áður að spyrja hv. þingmann, af því að hann lýsti því yfir þá að hann væri ánægður með að lenging Akureyrarflugvallar væri ekki kláruð fyrr en haustið 2009, og spurning mín til hv. þingmanns er einfaldlega þessi, virðulegi forseti: Er hv. þingmaður virkilega enn þá ánægður með að lenging Akureyrarflugvallar skuli ekki komast í gagnið fyrr en haustið 2009? (Samgrh.: Hver segir það, að það sé ekki fyrr en 2009?)