133. löggjafarþing — 73. fundur,  19. feb. 2007.

samgönguáætlun fyrir árin 2007--2010.

574. mál
[18:07]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er auðvitað afar mikilvægt að undirstrika það að Suðurstrandarvegur hefur aldrei komist inn á áætlun fullfjármagnaður. Það blasir alveg við og hefur legið fyrir og þingmenn sem hafa kynnt sér þau mál þekkja það. Auðvitað væri æskilegt að við gætum lokið tilteknum vegaframkvæmdum.

Hins vegar lít ég svo á að um það hafi verið mikil sátt, m.a. hjá þingmönnum að leggja megináherslu á tvöföldun Reykjanesbrautarinnar, klára þá framkvæmd, og svo hins vegar að leggja alla áherslu á Suðurlandsveginn, þ.e. að leggja veginn austur fyrir fjall sem allra fyrst, fullbyggðan að Selfossi.

Það er nú hinn kaldi veruleiki stjórnmálamannanna að þurfa að gera upp á milli, forgangsraða. Ég tel að það sé miklu skynsamlegra að hægja á framkvæmdum, ég segi ekki hægja á heldur taka minni áfanga í Suðurstrandarvegi en þeim mun stærri áfanga og hraðari á Suðurlandsvegi til þess að tryggja umferðaröryggi. Þar er umferðarþungi.

Auðvitað væri skemmtilegt og gott að geta klárað Suðurstrandarveginn. Ég tek undir það. En því miður, við þurfum að forgangsraða. Ég tel að þetta sé rétt forgangsröðun.

Hvað varðar Bakkafjöruna og jarðgöng þá er ég búinn að svara þessari spurningu þingmannsins svo oft að ég tel ekki ástæðu til að halda fleiri ræður um það. En ég bíð eftir svarinu frá honum. Hver er afstaða hans? Vill hann setja 50, 60, 70, eða 100 millj. kr. í jarðgangarannsóknir á sama tíma og við erum á grundvelli samþykktar Alþingis að undirbúa Bakkafjöruhöfn?