133. löggjafarþing — 73. fundur,  19. feb. 2007.

samgönguáætlun fyrir árin 2007--2010.

574. mál
[18:13]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þessi nauðhyggja er auðvitað alveg út í hött. Til að velja á milli þessara tveggja samgöngukosta þar sem við leiðum til lykta um langa framtíð, um áratuga skeið, samgöngur milli lands og Vestmannaeyja þarf að sjálfsögðu að rannsaka báða kostina til hlítar.

Það hefur ekki einu sinni legið fyrir hvort mögulegt sé að byggja höfnina í Bakkafjöru. Um það deila vísindamenn og bændur og þeir sem þekkja þar til í fjörunni út af landfræðilegum ástæðum þar.

Það er eins og með göngin. Í fyrsta lagi hefur verið rætt um að göng kosti alveg frá 18 milljörðum kr., sem kom í áætlun frá norskum sérfræðingum sem Árni Johnsen kom fram með á sínum tíma, upp í 60–70 milljarða kr. sem var í áætlun sem kom fram frá Vegagerðinni fyrir einhverjum missirum.

Slíkar tölur og slíkt misræmi á milli talnanna setur málið að sjálfsögðu fyrst og fremst bara í uppnám. Það veit enginn hvað þetta kostar og það veit enginn hvort þetta er tæknilega mögulegt. Það er ekki hægt að velja á milli þessara tveggja kosta.

Það væri að sjálfsögðu alveg fráleitt að fresta rannsóknum í Bakkafjöru út af hinu. Það þarf að leiða báða kostina til lykta og ná sátt um málið í Eyjum sem annars staðar.

Hvað varðar Suðurstrandarveginn, þá var ekki minna við haft fyrir fjórum árum en að þáverandi forsætis- og utanríkisráðherrar Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson héldu sérstakan blaðamannafund þar sem þeir lofuðu sérstökum samgönguframkvæmdum til að rífa upp efnahagslífið á þeim tíma. Þar var Suðurstrandarvegurinn númer eitt, þó að væri búið að marglofa honum áður. Nei, það er ekki hægt að svíkja það sem ekki var lofað.

Ég hugsa að engum vegspotta á Íslandi hafi verið lofað oftar en Suðurstrandarvegi og enginn jafnoft verið svikinn og Suðurstrandarvegur. Það er bara staðreynd málsins. Davíð Oddsson fór með það í pokanum á sínum tíma að hafa lofað þessum vegi sérstaklega fyrir fjórum árum, af samgönguráðherra. Ég veit ekki hvort hann var forspurður eða ekki í því máli. En honum var lofað sérstaklega þá (Forseti hringir.) og svo var kjörtímabilið varla byrjað þegar hann var svikinn og skorinn niður.