133. löggjafarþing — 73. fundur,  19. feb. 2007.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

588. mál
[21:09]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. samgönguráðherra fyrir svörin. Ég tel að hann hafi í svari sínu gefið þær skýringar að einnig væri stefnt að einföldun og samræmingu að því er varðar leyfi á útihátíðum. Ég fagna þeim skilningi ráðherrans á þessu frumvarpi. Við fáum þetta svo til umfjöllunar í samgöngunefnd og er gott að hafa þar það veganesti sem er svar ráðherrans við fyrirspurn minni.