málefni aldraðra.
Hæstv. forseti. Kostnaðarmatið er metið niður í 35–40 þús. kr., hæstv. ráðherra leiðréttir mig ef ég hef tekið vitlaust eftir, en mér fannst hún tjá það í fyrri ræðu sinni að matið af hendi fjármálaráðuneytisins hefði m.a. verið unnið upp úr upplýsingum frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu. Ég held að ég hafi tekið rétt eftir því. Þá hlýtur það líka að vera þannig að þau vistunarmöt sem hafa farið fram úti á landi hljóta að hafa kostað miklu minna en 60 þús. kr. eins og hvert mat kostaði á Reykjavíkursvæðinu, og útreikningar séu þá byggðir á því.
Þess vegna spyr ég og vænti þess að hæstv. ráðherra hafi einhverjar upplýsingar um það: Var kostnaður miklu minni við þessi möt úti á landi en lagt var upp með á Reykjavíkursvæðinu þar sem upplýst er að meðalkostnaðurinn hafi verið 60 þús. kr. á hvert mat? Ef svo er, hefur þetta þá verið skoðað sérstaklega með tilliti til árangurs annars vegar á landsbyggðinni og hins vegar á Reykjavíkursvæðinu, bæði kostnaðarlega og framkvæmdarlega?