133. löggjafarþing — 75. fundur,  21. feb. 2007.

þróun kaupmáttar hjá almenningi.

[12:15]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Menn staðhæfa að með hliðsjón af meðaltali hafi orðið veruleg kaupmáttaraukning á Íslandi á undanförnum árum og að um þetta sé ekki deilt. Það má til sanns vegar færa. Hins vegar er um það deilt hvaða áhrif geigvænleg, sívaxandi og síversnandi skuldastaða þjóðarbúsins komi til með að hafa þegar fram líða stundir og í þessu tilliti er mjög mikilvægt að vel takist til um ábyrga efnahagsstjórn á komandi árum til að festa stöðugleika í sessi.

Það sem hins vegar skiptir mestu máli er að sundurgreina þessar stærðir, horfa ekki á meðaltalið. Ég tel að réttar sé að spyrja: Er auðveldara nú en fyrir 15 árum að vera tekjulítill án húsnæðis? Er auðveldara nú en fyrir 15 árum að vera tekjulítill og veikur? Þetta eru þær spurningar sem skipta máli.

Ég vek athygli á því að þegar horft er á húsnæðiskostnað, svo dæmi sé tekið, hefur hann frá árinu 2002 og fram á þennan dag, og er ég þá að vísa í húsnæði, hita og rafmagn, hækkað um 59,68% á sama tíma og launavísitala hefur hækkað um 39%. Ég er að sýna fram á að erfiðara er nú en á þeim tíma að afla húsnæðis og ég vek athygli á því líka að húsnæðið vegur yfir 26% í neysluvísitölunni og þar með í lánskjörunum, í lánavísitölunni. Það eru þessir hlutir sem ríkisstjórnin á að vera að skoða því þetta eru hennar verk. Og það er þetta misrétti og misvægi sem (Forseti hringir.) Alþingi á að skoða í stað þess að berja sér á brjóst eins og stjórnarsinnar eru að reyna að gera í þessu máli.