133. löggjafarþing — 75. fundur,  21. feb. 2007.

þróun kaupmáttar hjá almenningi.

[12:20]
Hlusta

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Við höfum á undanförnum mánuðum heyrt kunnuglegan söng frá hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar, bæði þeim sem lengi hafa verið í stjórnarandstöðu og líka þeim sem nýkomnir eru þangað, um fátækt, misskiptingu og ráða hefur mátt af máli þeirra að hér á landi væri allt í óefni og þróunin hefði verið hörmuleg. Það sem kom fram í ræðu hæstv. fjármálaráðherra áðan eru mjög athyglisverðar upplýsingar. (Gripið fram í: Það kom ekkert fram.) Það eru mjög athyglisverðar upplýsingar að kaupmáttur hefur vaxið meira en í öllum samanburðarlöndum, að Noregi undanskildum. Það hljóta að vera tíðindi, það hlýtur að teljast árangur. (Gripið fram í.) Það hefði líka talist einhvern tíma árangur að kaupmátturinn hefur aukist umfram verðbólgu. Hann hefur aukist umfram vaxtagjöld og þó að Ísland sé vissulega dýrt land, þá var það það líka fyrir 15 árum. Það sem skiptir máli er að þegar tekið er tillit til þeirra staðreynda sem liggja á borðinu hefur kaupmátturinn aukist umtalsvert á landinu. Það hefur verið árangur ríkisstjórnarstefnunnar, það hefur verið markmið þeirra ríkisstjórna sem setið hafa á undanförnum árum að skapa skilyrði fyrir bættum kjörum í landinu og niðurstöðutölurnar sýna ótvírætt að það hefur tekist. Það hefði einhvern tíma talist árangur. Og það er athyglisvert að hugsa til þess að þær aðgerðir sem hafa skilað þeim árangri, opnun hagkerfisins, einkavæðing, skattalækkanir og annað slíkt sem hefur hleypt lífi í atvinnulífið, að stjórnarandstaðan á þingi hefur iðulega barist gegn slíkum breytingum. (Gripið fram í.)

Það er rétt sem hv. þm. bendir á að EES skiptir verulegu máli í þessu sambandi en það er ekki eina forsendan. Skattalækkanir hafa skipt (Gripið fram í: Hver var á móti því?) gríðarlegu máli. Sumir þingmenn voru á móti EES (BjörgvS: Hver var á móti EES?) og sumir flokkar eins og Alþýðubandalagið, (Gripið fram í.) hinn gamli flokkur Björgvins G. Sigurðssonar, (Gripið fram í.) var á móti EES. (Forseti hringir.) En árangurinn hefur verið ótvíræður. Þetta er (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) árangur markvissrar stjórnarstefnu sem stjórnarandstaðan hefur verið á móti allan tímann.

(Forseti (RG): Forseti fer þess á leit að þingmenn gefi ræðumönnum hljóð í þessari umræðu.)