eftirlit með gasbúnaði í hjólhýsum.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég verð að segja að hann sýnir hér ákveðinn sveigjanleika, ef ég skildi orð hans rétt, að hann sé tilbúinn að færa þetta reglubundna eftirlit yfir til skoðunarstofa. Mér finnst það mjög til fyrirmyndar að ráðherra vilji með þessu ekki vera allt of fastur í reglugerðamúrum í kringum hvert og eitt ráðuneyti heldur færa það verklag eða verk úr sínu ráðuneyti og mögulega til skoðunarstofu sem heyrir undir annan ráðherra. Ég er á því að ýmsir aðrir ráðherrar ættu að taka sér þetta til fyrirmyndar, sérstaklega vil ég minnast hér á hæstv. landbúnaðarráðherra sem virðist ekki geta sleppt ýmsum verkum, svo sem dýravernd, og samræmt þau mál. Það er svo einkennilegt að hann getur í rauninni ekki samræmt dýraverndarmálin og komist að sameiginlegum reglum með umhverfisráðherra. Við sitjum því uppi í þeim málaflokki með reglugerð frá árinu 1957 þar sem gert er skylt að slátra alifuglum annaðhvort með beittri exi eða með skotvopni.
Ég tel að hæstv. ráðherrar verði að gera eins og hæstv. ráðherra gerir hér, að sýna sveigjanleika og vera tilbúinn að færa eftirlit í skilvirkara horf, svo sem eins og að fara með eftirlit frá Vinnueftirlitinu til skoðunarstofu þar sem bílar koma reglulega til skoðunar og þá er lítið mál fyrir viðkomandi eftirlitsmann að kíkja á gasbúnaðinn ef hann hefur leiðbeiningar frá Brunamálastofnun um það hvernig ganga skuli frá viðkomandi búnaði.
(Forseti (ÞBack): Forseti vill áminna hv. þingmann um að ávarpa bæði ráðherra og þingmenn með viðeigandi hætti.)