meðferðarúrræði fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga.
Herra forseti. Í mínum huga fer ekki á milli mála að þeir sem háðir eru neyslu áfengis og vímuefna séu haldnir sjúkdómi. Gagnvart honum ættu sömu reglur að gilda og með aðra sjúkdóma og best er að reyna að sporna gegn þeim. Þess vegna eru forvarnir, einkum gagnvart börnum og unglingum, svo mikilvægar.
Greiningartæki eru til sem gefa vísbendingar um hverjir þurfi á hjálp að halda vegna áfengisneyslu. Sem dæmi má nefna Cates-spurningalistann:
„Hefur þér fundist þú þurfa að minnka áfengisdrykkju?
Ergir drykkjuskapur þinn aðra?
Hefurðu einhvern tíma haft samviskubit af því að drekka?
Hefurðu einhvern tíma þurft að drekka á morgnana til að slaka á og róa taugarnar eða til að losna við timburmenn?“
Svari fólk tveimur af þessum fjórum spurningum játandi gefur það vísbendingu um að áfengisneysla geti verið vandamál.
Hvaða meðferð skilar svo mestum árangri? Um það eru menn ekki á einu máli en mér sýnist skipta mestu að af stjórnvalda hálfu þyrfti að hafa slík mál á einni hendi. Mér finnst eðlilegt að heilbrigðisyfirvöld hafi með þau að gera. Hjá því verður ekki komist að sveitarfélög hafi með félagslegar hliðar að gera, svo sem búsetuúrræði, og þar kemur félagsmálaráðuneytið til sögunnar. Frjáls félagasamtök, eins og t.d. SÁÁ og AA-samtökin, hafa fyrir löngu sannað sig. Dómskerfið kemur einnig að málum, einkum hvað varðar meðferð fanga en eins og flestum er ljóst er áfengis- og vímuefnaneysla stór orsakaþáttur í mörgum afbrotum. Mér finnst oft að skylda þyrfti brotamenn í meðferð vegna áfengis- og vímuefna og það verði í vaxandi mæli hluti af dómsorði.
Svör heilbrigðisráðherra áðan fundust mér fagleg og málefnaleg og skilmerkileg. Ég held að við séum betur sett í meðferð sjúklinga okkar en margir aðrir og það þarf að halda áfram á þeirri braut.