133. löggjafarþing — 77. fundur, 22. feb. 2007.
tilkynning um mannabreytingar í nefnd.
Borist hefur svohljóðandi bréf frá þingflokksformanni Frjálslynda flokksins, Magnúsi Þór Hafsteinssyni, dagsett 19. febrúar sl.:
„Þingflokkur Frjálslynda flokksins hefur ákveðið, í samræmi við 16. gr. þingskapa, að Kristinn H. Gunnarsson taki sæti Sigurjóns Þórðarsonar í iðnaðarnefnd.“
Ef engar athugasemdir eru verður þessi breyting á skipan iðnaðarnefndar.