endurmat á stöðu mála í Írak.
Frú forseti. Forherðing hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar er ótrúleg í þessu máli. Hér kemur hæstv. forsætisráðherra og neitar hreinlega að svara þeirri spurningu sem stjórnarandstaðan beinir til hans. Við erum ekki að krefjast þess að hætt verði við þann stuðning sem þingið samþykkti á sínum tíma, það var gert með löglegum hætti. Hins vegar var stuðningur ríkisstjórnarinnar við innrásina í Írak löglaus og siðlaus og hann var ekki tekinn á Alþingi. Hann var tekinn í reykfylltum bakherbergjum og hefur engan lagalegan stuðning. Þess vegna ætti hæstv. forsætisráðherra að skammast sín fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og hann ætti að lýsa því yfir að sá stuðningur gildi ekki lengur.
Mig langar að spyrja hæstv. landbúnaðarráðherra, varaformann Framsóknarflokksins: Ætlar hann að sitja hér þegjandi undir þessu? Framsóknarflokkurinn er rúinn fylgi og trúverðugleika einmitt út af því að hann tók þátt í þessu. Ætlar Framsóknarflokkurinn í aðdraganda kosninga ekki að koma hingað og segja fyrir framan alþjóð: Okkur urðu á mistök? Ég skora á Framsóknarflokkinn að biðjast afsökunar á mistökum sínum. Þetta var löglaust af hans hálfu og það var siðlaust. Ætlar Guðni Ágústsson varaformaður að sitja þegjandi undir þessu?