133. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2007.

endurmat á stöðu mála í Írak.

[10:49]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Frú forseti. Ég hélt að maður með hjartalag hæstv. landbúnaðarráðherra segði það undanbragðalaust að hann iðraðist þess að eiga aðild að ákvörðun sem hefði leitt til þess að miklar hörmungar voru kallaðar yfir þessa saklausu þjóð.

En hann kemur hingað, að vísu ekki eins forhertur og hæstv. forsætisráðherra, en Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, neitar að biðjast afsökunar á því fyrir hönd flokks síns að hafa stutt innrásina í Írak. Samt kemur það fram (Gripið fram í.) að hann segir ákvörðun Framsóknarflokksins hafa verið tekna á grundvelli rangra upplýsinga.

Þá hlýtur ákvörðunin að hafa verið röng. Er þá ekki sjálfsagt að segja það og biðjast afsökunar á því? Er þá ekki sjálfsagt að segja: Við gerðum mistök. Framsóknarflokkurinn tók þátt í verknaði sem voru mistök af hans hálfu?

En hann gerir það ekki og þess vegna ber Framsóknarflokkurinn ekki minni ábyrgð, jafnvel meiri, en Sjálfstæðisflokkurinn. Af hverju? Vegna þess að Framsóknarflokkurinn hafði verið andsnúinn innrásinni þangað til formaður hans snerist á einni nóttu. Það gerðist á bak við luktar dyr í reykfylltum bakherbergjum þar sem menn véluðu um völd í íslenskri ríkisstjórn. (Gripið fram í.) Það var þess vegna sem Framsóknarflokkurinn var keyptur til stuðnings í þessu máli og það er þess vegna sem hans sök er svo miklu meiri. (Gripið fram í.)

Frú forseti. Alþjóðlegar stofnanir hafa metið hverjar afleiðingarnar voru, 700.000 borgarar hafa látið lífið. (Gripið fram í.) Allar þær þjóðir sem studdu innrásina bera með vissum hætti siðferðilega ábyrgð. Það gerum við Íslendingar líka. Röng ákvörðun var tekin fyrir hönd okkar allra. Þeir sem tóku hana eiga fyrir hönd okkar allra að (Forseti hringir.) biðjast afsökunar.