endurmat á stöðu mála í Írak.
Virðulegi forseti. Ég ítreka þá skoðun mína að ég tel ánægjulegt að þróunin í suðurhluta Íraks skuli vera með þeim hætti að bæði Danir og Bretar telji nú óhætt að flytja heim verulegan hluta af þeim mannskap og herafla sem þeir hafa þar haft.
Þetta kemur allt saman fram og er útskýrt í yfirlýsingu danska forsætisráðherrans í gær sem hafði þá haft samband við forseta Bandaríkjanna og kollega sína í Bretlandi, Írak og víðar.
Forsætisráðherra Íraks lýsti ánægju sinni við Anders Fogh Rasmussen, minn danska kollega, yfir því að staðan væri núna sú að í Suður-Írak gætu Írakar sjálfir tekið að sér að annast öryggismálin. Þess vegna ætla Danir að breyta áherslum sínum. Þeir ætla núna að kalla heim þá hersveit sem þar hefur verið og nýta betur liðsafla sinn, t.d. í Afganistan. Þeir ætla að senda fjórar þyrlur og 55 manna sveit með þeim og svo eru þeir með ráðgjafa og margt fleira eins og ég gat um áðan til að fylgja eftir framlagi sínu til uppbyggingar í landinu. Þetta er staðan ef menn vilja kynna sér þetta. Það er auðvitað ánægjulegt, ítreka ég, að þarna í Suður-Írak skuli staðan vera þessi. Auðvitað er hún misjöfn í landinu. Írak er stórt ríki, þar eru mörg héruð og staðan er misjöfn eftir héruðum. Víða í landinu er búið að koma á sæmilegri kyrrð og hefur öryggisstaðan breyst mjög til hins betra víða í landinu, en því miður ekki alls staðar.
Hvað varðar þau réttindi sem Bandaríkjamönnum voru veitt í íslenskri lofthelgi og á íslenskum flugvelli í sambandi við átökin hér árið 2003, fyrir fjórum árum, hefur það áður komið fram af minni hálfu að þær heimildir eiga ekki við lengur vegna þess að staðan er gjörbreytt.