Norræna ráðherranefndin 2006.
Herra forseti. Á þingskjali 934 liggur fyrir ársskýrsla Íslandsdeildar þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál og mun ég í stuttu máli gefa þingheimi kynningu á helstu málum í brennidepli innan norðurskautssamstarfsins á liðnu ári.
Ársskýrsla Íslandsdeildar fyrir árið 2006 gerir störfum þingmannanefndar um norðurskautsmál ítarleg skil auk skipanar Íslandsdeildar. Ég mun því aðeins stikla á stóru en vísa að öðru leyti í skýrsluna sem mælt er fyrir.
Fyrsta ráðstefna þingmanna og fulltrúa norðurskautssvæða var haldin í Reykjavík árið 1993, en nokkur samvinna norðurskautsríkja hófst þegar samþykkt var áætlun um umhverfisvernd á norðurslóðum í Rovaniemi í Finnlandi árið 1991. Ráðstefnan í Reykjavík árið 1993 markaði hins vegar upphafið að stofnun þingmannanefndar um norðurskautsmál sem sett var á laggirnar árið 1994. Nefndin er stjórnarnefnd þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál sem haldin er á tveggja ára fresti. Á ráðstefnunni kemur saman stór hópur þingmanna frá ríkjunum við norðurskaut, sem og sérfræðingar frá ríkisstjórnum, háskólastofnunum og félagasamtökum er láta sig málefni norðursins varða. Eitt meginviðfangsefni þingmannanefndarinnar er að fylgja eftir samþykktum ráðstefnunnar sem og að fylgjast grannt með störfum Norðurskautsráðsins.
Þingmannanefndin fundar að jafnaði þrisvar á ári og einn þingmaður frá hverju aðildarríki situr í nefndinni. Þjóðþing Bandaríkjanna, Kanada, Rússlands og Norðurlanda eiga fulltrúa í nefndinni og auk þess á Evrópuþingið fastan fulltrúa. Almennt má segja að helstu verkefni í norðurskautssamstarfi lúti að sjálfbærri þróun og umhverfismálum. Undanfarin ár hefur sérstök áhersla einnig verið lögð á varðveislu menningararfleifðar og lífshátta þeirra þjóðflokka er byggja landsvæðin við norðurskaut, sem og aukna efnahagslega og félagslega velferð og velmegun íbúa norðursins.
Herra forseti. Árið 2006 var áfram lögð mikil áhersla á umhverfismál og sérstaklega loftslagsbreytingar. Það hefur verið mjög áberandi í norðurskautssamstarfinu. Undir lok formennskutíðar Íslands árið 2004 var gefin út skýrsla um áhrif loftslagsbreytinga á norðurskautssvæðinu, Arctic Climate Impact Assessment, skammstafað ACIA. Skýrslan er fyrsta svæðisbundna allsherjarrannsóknin á loftslagsbreytingum sem birt hefur verið eftir að samningur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar var gerður. Skýrslan vakti mikla athygli og hefur verið notuð sem eins konar grunnur að alþjóðlegri umræðu um loftslagsbreytingar á norðurslóðum.
Í skýrslunni kemur fram að gríðarlega hraðar loftslagsbreytingar hafa átt sér stað á norðurskautssvæðinu síðustu áratugi og loftslag fer ört hlýnandi. Ekki sér fyrir endann á þessum breytingum og spáð er enn örari þróun í þessa átt á næstu áratugum. Norðurslóðir einkennast af sérlega viðkvæmum vistkerfum og ljóst þykir að þróunin við norðurskaut sé eins konar fyrirboði þess sem verður annars staðar í heiminum. Áætlað er að þær loftslagsbreytingar sem eiga sér stað á 10 ára tímabili á norðurslóðum gerist á 25 ára tímabili annars staðar. Hitastig á norðurslóðum hækkar að jafnaði tvisvar sinnum hraðar en loftslag annars staðar í heiminum. Þótt hitastig sé að jafnaði að hækka á norðurslóðum sem og á jörðinni allri sýnir skýrslan hins vegar að loftslagsbreytingar hafa mismunandi og ójöfn áhrif á ólík svæði jarðar.
Umræða um siglingaleiðir var áberandi á árinu. Með minnkandi hafís á norðurskautssvæðinu og auknum þrýstingi alþjóðavæðingar um sífellt stærri flutningaskip má búast við að siglingaleiðir milli Asíu annars vegar og Evrópu og austurstrandar Norður-Ameríku hins vegar opnist á næstu árum. Þar með styttast siglingaleiðirnar verulega, eða um allt að helming. Auknar siglingar um norðurskautið munu hafa veruleg áhrif á Ísland sem gæti legið vel við sem umskipunarhöfn fyrir þessa miklu flutninga. Þeim tækifærum sem í þessu felast fylgir einnig nokkur áhætta, m.a. vegna meiri hættu á umhverfisslysum, og verulega aukin verkefni fyrir landhelgisgæsluna. Einnig hafa Norðmenn hafið mikla olíu- og gasvinnslu í Barentshafi og þykir líklegt að Rússar fylgi í kjölfarið á komandi árum. Stór hluti þessarar orku verður fluttur með skipum til Norður-Ameríku um íslenska landhelgi.
Norðurskautsráðið er að vinna að mati á siglingum á svæðinu í ljósi hlýnunar jarðar sem taka mun mið af þessum þáttum og verður kynnt síðar. Ég held að ég fari rétt með þegar ég segi að í þessum málaflokki, varðandi siglingaleiðir um norðurhöf, hefur íslandsdeildin haft algjöra forustu og sett málið á dagskrá.
Alþjóðaár heimskautasvæðanna, á ensku International Polar Year, var undirbúið á árinu en það hefst í þriðja sinn í mars 2007. Vísindamenn frá yfir 60 löndum munu taka þátt í rannsóknum alþjóðaársins. Því er ætlað að leiða til stórátaks í rannsóknum og athugunum á heimskautasvæðum jarðar. Rannsóknir á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á umhverfi, lífríki og samfélag verða í brennidepli á rannsóknarárinu en lögð er sérstök áhersla á þverfaglegar rannsóknir. Þingmennirnir lögðu áherslu á að litið yrði til félagsvísinda í rannsóknum á alþjóðaárinu. Við það mundi skýrsla Norðurskautsráðsins um sjálfbæra mannlífsþróun á norðurslóðum nýtast vel. Vonast er til að alþjóðaárið geti virkað sem hvati til frekari áherslu á heimskautarannsóknir í framtíðinni.
Sem formaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnunnar fjallaði ég um þróun mála á Íslandi. Ég lagði áherslu á mikilvægi norðurskautsins fyrir Ísland, sem m.a. má sjá í fjölda verkefna sem íslensk stjórnvöld hafa unnið að í kjölfar formennskuárs Íslands í Norðurskautsráðinu frá 2002 til 2004. Íslendingar hafa sérstaklega unnið að eftirfylgni með skýrslu um sjálfbæra mannslífsþróun á norðurslóðum.
Einnig vakti ég athygli á einhliða ákvörðun Bandaríkjanna um brotthvarf varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og því að með auknum loftslagsbreytingum og minnkandi hafís mætti búast við enn frekari siglingum um norðurhöf, bæði vegna flutninga frá Asíu til Evrópu en einnig vegna aukinnar olíu- og gasvinnslu á svæðinu. Ég kynnti stöðu björgunarmála á Íslandi og þær breytingar sem yrðu við brotthvarf Bandaríkjamanna, þ.e. að eftir brotthvarf þyrlubjörgunarsveitar varnarliðsins væru ekki lengur til staðar við Norður-Atlantshafið þyrlur sem gætu tekið eldsneyti á lofti. Sú staðreynd drægi stórlega úr öryggi siglinga og flugumferðar á svæðinu. Ég lagði því til að í ályktun þingmannaráðstefnunnar í Kiruna yrði sérstaklega hvatt til aukinnar samvinnu aðildarríkja Norðurskautsráðsins á sviði siglingaöryggis, sérstaklega varðandi leitar- og björgunarmál. Hill-Marta Solberg, formaður stjórnarnefndarinnar, studdi tillöguna.
Herra forseti. Sjöunda þingmannaráðstefnan um norðurskautsmál var haldin í Kiruna í Svíþjóð 2.–4. ágúst 2006. Fulltrúar ellefu þinga sóttu ráðstefnuna, ásamt öðrum gestum. Hluti ráðstefnunnar var tileinkaður alþjóðlegum lagaramma norðurskautssvæðisins og hugsanlegum alþjóðasamningi um norðurskautssvæðið í anda alþjóðasamnings um nýtingu suðurskautssvæðisins. Ég var, sem formaður Íslandsdeildar, annar stjórnenda umræðnanna.
Ólíklegt verður þó að teljast að sams konar samningur náist um norðurskautið þar sem ríki á borð við Kanada og Rússland gera tilkall til stærsta hluta svæðisins samkvæmt hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þau hafa því lítinn áhuga á að láta binda hendur sínar varðandi nýtingu svæðisins. Hins vegar er mögulega hægt að skýra og bæta þá alþjóðaumhverfissamninga sem ná til norðurskautssvæðisins og nýtingar náttúruauðlinda þess.
Þingmannanefndin hefur fjallað ítarlega um skýrslur um áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðum og sjálfbæra mannlífsþróun þar. Auk þess minntist hún á stuðning þingmannanefndarinnar við Háskóla norðurslóða sem er mikilvægt tæki til þess að auka þekkingu á norðurskautssvæðinu. Fjöldi nemenda við skólann tífaldaðist frá árinu 2002 til 2005 og stunda nú um 730 manns nám við skólann. Að lokum var flutt skýrsla um þróun upplýsingatækni á norðurskautssvæðinu. Þingmannanefndin hefur lagt ríka áherslu á frekari nýtingu upplýsingatækni fyrir íbúa norðurskautssvæðisins, m.a. við kennslu og fjarlækningar. Áhersla nefndarinnar á þessi mál varð til þess að Norðurskautsráðið stendur nú að gerð matsskýrslu um þróun upplýsingatækni fyrir strjálar byggðir norðursins. Niðurstöður úr könnuninni eiga að liggja fyrir í lok árs 2008. Íslendingar hafa verið leiðandi í þessu starfi og m.a. unnið vefgátt fyrir norðurskautið á veraldarvefnum.
Undir lok ráðstefnunnar var samþykkt yfirlýsing þar sem m.a. var kallað eftir auknum fjárframlögum til rannsókna og samstarfs norðurskautsríkja um öryggi á hafinu, sérstaklega leitar og björgunarmál. Þingmenn frá Noregi, Kanada og Rússlandi fögnuðu yfirlýsingunni sérstaklega en íslenskir þingmenn lögðu mikla áherslu á aukið samstarf þjóðanna á þessu sviði.
Herra forseti. Eins og áður sagði er gerð nákvæmari grein fyrir því sem fram fór á fundum nefndarinnar í skýrslu þeirri sem ég hef mælt fyrir og vísa ég til hennar varðandi frekari upplýsingar um störf nefndarinnar.
Að svo mælti læt ég lokið umfjöllun minni um skýrslu Íslandsdeildar þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál fyrir árið 2006. Um leið langar mig fyrir hönd Íslandsdeildarinnar færa þakkir mínar til þeirra sem hafa starfað með nefndinni, einkum til Tómasar Brynjólfssonar, ritara nefndarinnar, sem vann frábært starf í hennar þágu og hins nýja ritara, Örnu Bang.