Þjóðskjalasafn Íslands.
Frú forseti. Eins og hæstv. dómsmálaráðherra hefur ítrekað sagt í þessum sölum þurfti jafnan að vera grunur um glæpsamlegt athæfi til þess að hleranir væru heimilaðar. Leiddu hleranirnar einhvern tíma til þess að einhvers konar andlag hefði verið við þeim grun? Kom einhvern tímann í ljós glæpsamlegt athæfi? Hvaða grunur um glæpsamlegt athæfi olli því að Hannibal Valdimarsson var á sínum tíma hleraður? Þetta þarf allt að koma upp, frú forseti. Niðurstaðan í skýrslunni var nákvæmlega eins og ég lýsti því fyrir fram yfir að hún yrði. Ég taldi að í ljós kæmi að búið væri að eyða flestum gögnunum og ég taldi sömuleiðis að menn yrðu tregir til að tala við nefndina. Hvort tveggja kom í ljós. Það kom í ljós að menn voru ekki viljugir til að tala við nefndina. Það kom líka í ljós, eins og við spáðum, að á meðan ekki væri víst að mönnum yrði tryggð uppgjöf saka kæmi enginn fram og greindi frá því hvort um einhvers konar saknæmt athæfi hefði verið að ræða.
Frú forseti. Það er athyglisvert að í skýrslunni kemur það t.d. fram að eftir að lögreglan fluttist í núverandi höfuðstöðvar á Hverfisgötu 72, þar sem var fullkominn nýtískuhlerunarbúnaður sem kom frá erlendri þjónustu, hættu hleranirnar. Þetta var nákvæmlega á því tímabili þegar mestar róstur róttæklinga voru. Þegar menn höfðu hörðust mótmæli og í einu skiptin sem menn frömdu það sem hægt er að flokka undir spellvirki var ekki fylgst með neinum.
Frú forseti. Ég tel það satt að segja hreinan barnaskap að halda því fram að þetta bendi ekki til þess að menn hafi haft einhverjar aðferðir til þess að komast á snoðir um það hvort þeir menn sem voru þá taldir viðsjálsgripir af hálfu lögreglunnar ætluðu sér eitthvað af þessu tagi. Ég tel það hreinan barnaskap. Skýrslan er góð (Forseti hringir.) svo langt sem hún nær en hún slær að mínu viti engu föstu nema því sem vitað var fyrir fram.