Þjóðskjalasafn Íslands.
Frú forseti. Ástæða er til að gera athugasemdir við ýmislegt sem fram kom í ræðu hv. þingmanns, sem var reyndar að mörgu leyti ágæt og fróðleg. Hv. þingmaður virðist vera með það á heilanum að um leyniþjónustu Sjálfstæðisflokksins hafi verið að ræða. Í því sambandi er rétt að rifja upp með hv. þingmanni að sjálfstæðismenn áttu ekki frumkvæðið að því að slíkt eftirlit var haft. Ég veit að hv. þingmaður veit það. (ÖS: Hverjir voru það?) Hann hefur lesið sér til um þessi mál og ég vísa honum á ágæta grein Þórs Whiteheads í tímaritinu Þjóðmál (ÖS: Þorir þú ekki að nefna framsóknarmenn?) þar um.
Í öðru lagi vil ég benda hv. þingmanni á að á bls. 11 í skýrslunni kemur fram að í hvert einasta skipti sem hlerað var hafi verið kveðinn upp dómsúrskurður sem heimilaði hleranir áður en þær voru framkvæmdar. Hv. þingmaður þarf ekki að beina spjótum sínum að Sjálfstæðisflokknum í því efni. Hann á að beina spjótum sínum að dómurunum. Það voru þeir sem heimiluðu hleranirnar.
Hv. þingmaður tekur upp sama þráð og Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi hæstv. utanríkisráðherra. Hann segir að þetta frumvarp sé ekki nóg. Hann segir að við þurfum að fara norsku leiðina. Veita þeim aðilum sem í hlut áttu sakaruppgjöf til þess að þeir eigi ekki á hættu að verða dæmdir fyrir brot á almennum hegningarlögum eða öðrum ákvæðum sem þessi atriði varða. En ég hlýt að spyrja hv. þingmann: Er þetta einhver (Forseti hringir.) röksemd í málinu? Eru ekki allar sakir fyrndar út af þessu máli?