133. löggjafarþing — 78. fundur,  26. feb. 2007.

Þjóðskjalasafn Íslands.

642. mál
[16:38]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður spyr hvort allar sakir séu fyrndar. Er það nú víst? Ég er ekki viss um það. Það fer eftir því hvenær þær áttu sér stað og í annan stað hvers eðlis þær voru. Hér kallaði einn hv. þingmaður fram í: „Ekki landráð.“ Undir hvað mundi maður flokka það þegar safnað er upplýsingum um pólitískar skoðanir manna og þeim komið í hendur erlendrar leyniþjónustu? Það gerðist. Ég hef hvorki lögfræðilega speki né menntun til að slá því föstu að þar hafi verið um landráð að ræða. Hv. þingmaður gæti upplýst mig um það.

Hitt er alveg ljóst og það hefur komið fram hjá sagnfræðingnum Þór Whitehead, sem hv. þingmaður vill ekki fremur en ég að skuggi falli á, að hin strangleynilega öryggisþjónusta, ásamt ýmsum öðrum, þar á meðal starfsmönnum stjórnmálaflokka, Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, og hugsanlega Alþýðuflokksins á einhverjum tíma, safnaði upplýsingum um pólitískar skoðanir manna. Það liggur fyrir að það var hin strangleynilega öryggisþjónusta, menn sem voru launaðir af íslenska ríkinu, sem komu þeim í hendur erlendrar leyniþjónustu. Hvað kallast það?

Frú forseti. Ég spyr síðan hv. þingmann: Ef hann hefur rétt fyrir sér, sem getur vel verið, hvað er þá að óttast? Af hverju eru sjálfstæðismenn svona hræddir við að norska leiðin verði farin? Ef málið er eins og þeir segja er alveg ljóst að þeir hafa ekkert að óttast. En þeir eru skíthræddir. Það er eitthvað sem forusta Sjálfstæðisflokksins óttast í þessu máli. Af hverju gera þeir ekki eins og forverar þeirra 1936 sem lögðu fram tillögu um að meintar pólitískar njósnir á þeim sjálfum yrðu rannsakaðar með þessum hætti? Ég er ekki að gera neitt annað en Bjarni Benediktsson gerði 1936.