133. löggjafarþing — 78. fundur,  26. feb. 2007.

Þjóðskjalasafn Íslands.

642. mál
[17:22]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Enginn úr hópi þeirra nafngreindu manna sem voru hleraðir á umræddum tíma var dæmdur, enginn af þeim var einu sinni ákærður. Það var því ekki svo að dómskerfið kæmist að þeirri niðurstöðu að einhverjar sakir væru ekki þannig að ástæða væri til að dæma menn fyrir þær, heldur var aldrei nein ákæra borin fram. Þess vegna er meira en lítil ástæða til að leggja fram spurningar eins og þær sem ég lagði fyrir hv. þingmann. Á grundvelli þess að viðkomandi væri grunaður um glæpsamlegt athæfi af hvaða tagi sem það var, eiturlyfjainnflutning eða eitthvað slíkt, þurftu þeir stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar, sem hér er aðallega verið að ræða um, að sæta símhlerunum vegna úrskurðar sem dómari kvað upp. Ég held að sagan sé búin að dæma í þessu máli. Þeir aðilar höfðu ekki aðhafst neitt sem menn töldu ástæðu til að ákæra fyrir. Því skyldu menn þá vera að láta það liggja í loftinu núna að þeir sem sættu hlerununum hafi haft eitthvert óhreint mjöl í pokahorninu? Mér finnst engin ástæða til þess. Ég tel að þarft væri að gerð yrði á því rannsókn hvernig það kom til að símar þeirra manna voru hleraðir og á þeim brotin mannréttindi með þeim hætti sem raun ber vitni.