Þjóðskjalasafn Íslands.
Frú forseti. Ég heyri ekki betur en ég og hv. þingmaður séum nokkurn veginn á sama máli. Við þurfum að læra af þeirri sögu sem gerðist og það er mikilvægt að hún verði öll sögð.
En það sem hefur verið dregið fram í dagsljósið með niðurstöðu nefndar sem var þverpólitískt skipuð, eins og fram hefur komið, í kjölfar þingsályktunartillögu sem var sett fram af formönnum allra flokka, þá fór ekki fram neitt ólöglegt athæfi og það var ekkert ólöglegt gert. Það var farið lögum samkvæmt í þær örfáu hleranir sem voru framkvæmdar hér á landi þannig að það hefur ekkert ólöglegt gerst.
Það var alltaf lögreglan sem kom að þessu og það þurfti starfsmenn Pósts og síma af því aðstæður og aðbúnaður lögreglu var þannig að lögreglan hafði ekki aðstöðu til þess að framkvæma sjálf hleranir eins og gert er í öðrum ríkjum.
En stóra málið er þetta að við þurfum að fá allt upp á yfirborðið og ég hef sjálf velt því fyrir mér hvort öll þau gögn sem um ræðir varpi nægjanlega skýru ljósi á þessa sögu. En vinnan sem fram undan er er mikil og þess vegna er brýnt að frumvarpið fái hér brautargengi þannig að Þjóðskjalasafnið fái tækifæri til að einhenda sér í þá vinnu. En eins og ég hef áður lýst þá hef ég mikinn hug á að fá því framgengt að mikill hluti þeirrar miklu vinnu muni fara fram á landsbyggðinni og við erum þegar byrjuð að huga að því hvar hægt er að koma henni fyrir í góðu samráði við þjóðskjalavörð.