133. löggjafarþing — 78. fundur,  26. feb. 2007.

veiðar og vinnsla erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi.

643. mál
[23:07]
Hlusta

Jón Gunnarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er ánægjulegt að heyra að hæstv. ráðherra er sammála mér um að við þurfum að efla Landhelgisgæsluna verulega til að sinna því hlutverki sem hún þarf að sinna á úthafinu. Vonandi er hann sammála mér um það að fyrsta skrefið upp á að búa almennilega að henni er að flytja hana á Reykjanes þar sem hennar bíða mjög glæsilegar byggingar og aðstaða, bæði fyrir flugflota og eins fyrir skip til að sinna sínu mikilvæga starfi.

Mig langar til að spyrja um annað í stuttu andsvari: Eru þær byrðar sem verið er að setja með þessum lögum á aðila um að gefa upplýsingar til Fiskistofu og upplýsingar sem aðilar eiga að láta Fiskistofu í té, ókeypis? Lögin segja að kaupendum afla, umboðsmönnum, útflytjendum, flutningsaðilum, bönkum, lánastofnunum og opinberum stofnunum sé skylt að láta Fiskistofu slíkar upplýsingar í té ókeypis.

Því veltir maður fyrir sér. Ef grunur reynist nú ástæðulaus og verið er að leggja þungar byrðar á þessa aðila, er það eðlilegt, eða mun þá á einhvern hátt verða gert ráð fyrir því að um endurgreiðslu á kostnaði verði að ræða, ef ekki reynist grunnur fyrir einhverjum grun um brot?

Það síðasta sem mig langar að spyrja um er að þessi lög tala mikið um skip, eins og skipin séu brotleg, eins og olíufélög séu brotleg, eins og það séu ekki einstaklingar, útgerðarmenn eða fyrirtæki sem gerast brotleg. Í mínum huga er þetta svipað því ef aðili á bíl gerist brotlegur við umferðarlög og brýtur illa af sér, þá megi ekki veita þeim bíl aftur leyfi til að aka á íslenskum vegum, jafnvel þótt hann skipti um eigendur. Þarf ekki að tala um annað en skipin sjálf? Því skip hafa ekki sjálfstæðan vilja og skipin hafa ekki sál.