133. löggjafarþing — 78. fundur, 26. feb. 2007.
veiðar og vinnsla erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi.
643. mál
Hæstv. forseti. Það er skaði að menn skuli ekki vera búnir að skoða það mál til enda. Ef niðurstaðan hefði orðið sú að við gætum beitt þessum aðferðum væri gott að það lægi fyrir. Ég er hins vegar alveg sammála hæstv. sjávarútvegsráðherra um að við eigum ekki að útiloka neitt. Við eigum að haga okkur eins og kjarnorkuveldin, að útiloka ekki notkun þessa vopns sem við höfum beitt með mjög góðum árangri áður. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um það.