veiðar og vinnsla erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi.
Herra forseti. Til umræðu er frumvarp til laga, sem hæstv. sjávarútvegsráðherra hefur mælt fyrir, um breytingar á lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, um að farið sé að öllum settum lögum. Í fyrsta lagi vil ég lýsa yfir fullum stuðningi við þau meginsjónarmið sem liggja að baki frumvarpinu, um að hér séu ekki stundaðar ólöglegar veiðar, hvorki af ólöglegum skipum né með ólöglegum veiðarfærum og án heimilda. Ég vil láta það koma fram strax.
Ég vil þó leggja áherslu á að ekki sé aðeins verið að ræða um afla heldur einnig veiðarfæri o.s.frv. Þannig að hér séu ekki skip að veiða, hvort sem er í landhelgi Íslands eða úr sameiginlegum fiskstofnum, hvort sem við höfum gert samninga við þá eða ekki, án þess að löglega sé að því staðið. Við höfum heyrt sagnir af fiskiskipum á karfamiðunum hérna, að skrapa og eyðileggja hafsbotninn með veiðarfærum sem ættu ekki að líðast við þær veiðar.
Ég vildi spyrja hæstv. ráðherra. Ég sé það ekki í lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, en ég hélt að ekki væri mikið um að erlend skip hefðu heimild til slíks. Í lögunum er talað um sameiginlega fiskstofna sem fara inn og út úr lögsögunni en annars eru ekki miklar heimildir fyrir erlend skip til að stunda veiðar í íslenskri landhelgi, nema þá kannski samningar við nágrannaríkin.
Við ræðum um það hvernig við getum hindrað ólöglegar veiðar í fiskveiðilögsögu Íslands eða í nágrenni hennar. En þar eru náttúrlega líka skip sem eru að veiða löglega, bæði hér á hafinu suður undan og einnig norður undan og á hafinu á móti Grænlandi. Þau skip þurfa þjónustu. Ef Grænlandsísinn víkur enn meir má búast við að fiskimiðin norður undan landinu, á hafsvæðinu norður með Grænlandi, vaxi. Þá gæti líka verið möguleiki á að bjóða fiskiskipum aukna þjónustu.
Vil ég í þessu sambandi minnast á þingsályktunartillögu sem hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir frá Suðureyri, sem sat sem varaþingmaður, Steingrímur J. Sigfússon og Kolbrún Halldórsdóttir fluttu: Tillaga til þingsályktunar um þjónustumiðstöð fyrir útgerð og siglingar í norðurhöfum sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera úttekt á möguleikum þess að efla norðanverða Vestfirði sem miðstöð þjónustu við vaxandi fiskveiðar við Austur-Grænland og skoða sérstaklega þann kost að þjónustumiðstöð og umskipunarhöfn fyrir siglingar í Norðurhöfum verði á Vestfjörðum.“
Ég vil heyra hjá hæstv. ráðherra hvernig háttað er bæði skipulagi og samningum um þjónustu við fiskiskip hér norður undan og vestur undan? Hvort ekki væri möguleiki á að koma upp þjónustumiðstöðvum. Hvort það gæti verið hluti af milliríkjasamningum að koma upp þjónustumiðstöð fyrir þessi skip á Ísafirði eða á þeim stöðum sem gert var ráð fyrir í umræddri tillögu til þingsályktunar.
En málið fer til sjávarútvegsnefndar. Ég sit í sjávarútvegsnefnd og þar förum við yfir einstaka þætti þessa máls, bæði í smærri atriðum og einnig sem hluta af þeirri heild sem um er að ræða.