133. löggjafarþing — 79. fundur,  27. feb. 2007.

málefni byggðarlaga utan landshlutakjarna.

[14:06]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga umræðuefni. Í samstarfssamningi ríkisstjórnarinnar eru rækileg ákvæði þar sem vikið er að byggðaþróun, að byggðarlögum utan svokallaðra landshlutakjarna og að byggðamálum yfirleitt.

Fjöldamörg verkefni og aðgerðir koma einnig fram í byggðaáætlun en nú er unnið samkvæmt byggðaáætlun fyrir árin 2006–2009 sem afgreidd var að venju hér á Alþingi.

Á þeim grundvelli hafa verið gerðir vaxtarsamningar fyrir byggðir Eyjafjarðar, fyrir Vestfirði, fyrir Vesturland, fyrir Suðurland og Vestmannaeyjar, fyrir Austurland allt og unnið hefur verið að undirbúningsþáttum vaxtarsamninga fyrir svæði fyrrverandi Þingeyjarsýslna og einnig fyrir svæðið sem áður var Norðurlandskjördæmi vestra. Enn er unnið að þessum verkefnum sem eru fjöldamörg og miklu fleiri en upp verði talið hér en alls staðar þyrfti að sönnu að bæta í og auka umsvifin.

Vaxtarsamningar eru mjög merkileg aðferð og aðgerð í byggðamálum og þeir eru nýjung á síðari árum. Að vaxtarsamningi, þegar vel tekst til, koma sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir, skólar og samtök auk ríkisvaldsins. Þess eru líka dæmi að tekist hafi að fá fyrirtæki og stofnanir í höfuðborginni með í vaxtarsamning fyrir fjarlægan landshluta. Þannig kemur þá fjármagn og þekking og vinnuframlög til viðbótar því sem heimamenn færa fram í vaxtarsamninginn.

Meginstefnumið ríkisstjórnarinnar mætti setja fram með þessum hætti: Í fyrsta lagi jafnræði landsmanna í öllum byggðum landsins, atvinnuöryggi og atvinnuþróun. Í öðru lagi aðgengi að þjónustu, menntun, samgöngum og opinberum stofnunum. Í þriðja lagi, síðast en ekki síst, frumkvæði og forusta heimamanna sem skapa sér sjálfir örlög og vinna sjálfir í framvarðarsveit og forustu að framförum í heimahögum. Það er mjög mikilvægt að forusta og forsjá sé sem allra mest í höndum heimamanna.

Nú hefur þróunin á landsbyggðinni að sönnu verið misjöfn og ólík milli einstakra landsvæða. Þau svæði sem einkum vekja áhyggjur um þessar mundir eru Vestfirðir, Norðurland vestra, norðaustursvæðið, suðaustursvæðið og Vestmannaeyjar. Á þessum svæðum er viðvarandi mannfækkun.

Í byggðaáætlun er ákvæði um athugun á stöðu byggðarlaga sem glíma við viðvarandi fólksfækkun. Byggðastofnun hefur verið falið þetta verkefni og vinnur það ásamt Impru, atvinnuþróunarfélögum, Háskóla Íslands, ráðuneytum og fleirum. Þetta verkefni er í vinnslu og verður gerð grein fyrir því síðar á þessu ári.

Ástæður byggðaröskunar og skýringarnar eru auðvitað margar en einkum þó að á þessum svæðum sem ég áður taldi upp eru hefðbundnar frumframleiðslugreinar mjög ráðandi í atvinnulífi. Þær eru í harðri hagræðingarþróun og fækka við sig fólki sem kunnugt er. Það er ekki áhlaupaverk að umstafla í atvinnulífinu, en rétt er að taka það fram að víða hafa nýsköpunarsprotar náð þroska og nægir í því efni að vísa til ferðaþjónustunnar.

Það er þess vegna enn þá meira áfall þegar forustufyrirtæki eins og Marel ákveður að pakka saman, kveðja og halda brott. Ráðuneytið mun á næstunni í samstarfi við Byggðastofnun leggja áherslu á að kynna sér allar aðstæður þessa sem best og aðstoða eftir föngum til að tryggja sambærilegt atvinnuframboð á Ísafirði áfram.

Loks vil ég nefna að Byggðastofnun kemur margvíða við sögu með framlög, lán og aðra aðstoð og fyrirgreiðslu á þeim svæðum sem hér voru nefnd. Vaxtarsamningarnir skipta auk þess auðvitað úrslitamiklu máli og þeir eru í framkvæmd. Auk þess má vísa til framkvæmda í samgöngumálum og skólamálum. Nýtt verkefni á vegum Þjóðskjalasafns verður unnið að hluta til í söfnum úti á landi.

Enn fremur vil ég benda á eða minna á það að Byggðastofnun vakti fyrir nokkru athygli á flutningamálum landsbyggðarinnar varðandi jöfnun kostnaðar á svipaðan hátt og sveitarstjórinn í Bolungarvík hefur nýlega gert. En mestu máli skiptir að nýjar atvinnugreinar, nýsköpun og framþróun þjónustugreina nái að skjóta rótum sem allra víðast.

Nýjar atvinnugreinar og nýtt framtak á nýjum sviðum verða að koma í staðinn fyrir þau atvinnusvið sem fækka við sig mannskap. Þessi eru þau langtímaverkefni sem við verðum að vinna áfram að. Þau eru ekki áhlaupaverk eða átaksverk heldur (Forseti hringir.) varanleg viðvarandi verkefni í þjóðfélaginu.