133. löggjafarþing — 79. fundur,  27. feb. 2007.

málefni byggðarlaga utan landshlutakjarna.

[14:27]
Hlusta

Sigurjón Þórðarson (Fl):

Herra forseti. Ef litið er yfir tölur um þróun mannfjölda á landinu sést svart á hvítu að Framsóknarflokkurinn hefur með hjálp Sjálfstæðisflokksins rekið glerharða stefnu gegn þessum byggðum. Og mér finnst ósvífið að verða vitni að því þegar hæstv. ráðherra byggðamála flytur mál sitt og ætlar ekki að nýta neitt síðasta mánuð sinn í starfi til að koma til móts við það fólk sem hann hefur leikið svo illa á undanförnum árum, þ.e. flokkur hans og stefna. Mér finnst alveg ótrúlegt að horfa upp á það að hann skuli ekkert ætla að gera, heldur kemur hann bara með eitthvert taut úr ráðuneytinu og ætlar að fela Byggðastofnun að gera eitthvað, Byggðastofnun sem hann ætlar að leggja niður. Fyrir þinginu liggur frumvarp um að leggja Byggðastofnun niður. Og hann ætlar að fela Byggðastofnun að gera eitthvað. Þetta er alveg fáheyrt.

Ég minni á að þessar byggðir eru í vanda út af sjávarútvegsmálum, út af því hvernig ríkisstjórnin hefur komið sjávarútvegi fyrir, bundið fyrir alla nýliðun í greininni. Það er þess vegna sem þessir bæir eiga um sárt að binda hringinn í kringum landið, og ekki út af neinu öðru. Ef ríkisstjórnin ætlar á einhvern hátt að koma til móts við þessar byggðir þarf að opna fyrir nýliðun í þessum greinum. En sú er alls ekki raunin, alls ekki. Þetta gengur meira að segja svo langt að unglingum er meinað að leggja færi í fjöru. Bændum er bannað að nýta fjörur sínar, og maður spyr sig: Hvað ætlar Framsóknarflokkurinn að ganga langt í að hefta atvinnufrelsi fólks á landinu? Mér finnst alveg ótrúlegt að verða vitni að því að Framsóknarflokkurinn sem kenndi sig einhvern tíma við það að standa vörð um byggðir landsins skuli vera í þessum verkum, vera í því að eyða byggðum landsins og búa til borgríki. Ég veit að byggðamálaráðherra er (Forseti hringir.) mikill áhugamaður um það að búa til borgríki en við í Frjálslynda flokknum (Forseti hringir.) sjáum einfaldlega tækifæri í því að nýta allt landið til búsetu.