133. löggjafarþing — 79. fundur,  27. feb. 2007.

virðisaukaskattur.

558. mál
[14:35]
Hlusta

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, en það er að finna á þskj. 963.

Með frumvarpinu eru lagðar til tvenns konar breytingar. Annars vegar er um að ræða tvær tæknilegar breytingar sem nauðsynlegt er að gera á lögum um virðisaukaskatt. Ástæða þess eru þær breytingar sem urðu á lögum um virðisaukaskatt með lögum nr. 175/2006 þar sem lægra skattþrep virðisaukaskatts var fært úr 14% í 7%. Hins vegar er lagt til að heimild til að nota skemmra uppgjörstímabil en einn mánuð verði afnumin. Þessi heimild var upphaflega sett til að draga úr áhrifum fjárbindinga við yfirfærsluna á söluskattskerfi í virðisaukaskattskerfi en þjónar nú einungis örfáum gjaldendum og veldur flækjum við almenna framkvæmd og við þróun rafrænnar þjónustu.

Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, Lúðvík Bergvinsson og Ágúst Ólafur Ágústsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Hv. þm. Ögmundur Jónasson ritar undir álit þetta með fyrirvara.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið rita hv. þm. Pétur H. Blöndal, Ólafur Níels Eiríksson, Birgir Ármannsson, Ásta Möller, Sæunn Stefánsdóttir og Ögmundur Jónasson, með fyrirvara.