133. löggjafarþing — 79. fundur,  27. feb. 2007.

virðisaukaskattur.

558. mál
[14:36]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Við fjöllum hér um lög um virðisaukaskatt og breytingu á þeim. Eins og fram kom hjá hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar, sem talar fyrir nefndaráliti með frumvarpinu, skrifa ég undir nefndarálitið með fyrirvara. Þann fyrirvara vil ég skýra.

Í fyrsta lagi ætla ég ekki að standa í vegi fyrir því að þetta frumvarp nái fram að ganga. Hér er um að ræða fyrst og fremst tæknilegar leiðréttingar á lögum um virðisaukaskatt þannig að ákvörðun Alþingis frá því í desember sl. um að breytingar á skattlagningu á matvöru nái fram að ganga, en þá var ákveðið að gera tvennt, að færa virðisauka á matvöru niður í 7%, í sumum tilvikum úr efra skattþrepinu sem liggur í 24,5% og öðrum tilvikum úr 14%, og einnig nema brott vörugjöld af matvöru.

Ég stend ekki í vegi fyrir því að þessar lagabreytingar nái fram að ganga eða þeirri leiðréttingu sem nauðsynlegt er að gera á frumvarpinu til að svo verði. Ég geri hins vegar tillögur um breytingu á frumvarpinu sem snýr að því að virðisaukaskatturinn haldist á gosdrykkjum og sykruðum drykkjum í efra þrepi og að gosdrykkir beri að auki vörugjald. Þetta er gert í samræmi við óskir Lýðheilsustöðvar en samkvæmt tillögum sérfræðinga hennar sem efnahags- og viðskiptanefnd bárust í desember ætti virðisaukaskatturinn á gosi að fara niður í 7% en vörugjaldið að haldast á þeim vörum, þ.e. gosdrykkjum og sykruðum drykkjum, og hækka að auki, vörugjaldið yrði hækkað þannig að þessi vara lækkaði ekki í verði. Þótt við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði förum þarna eilítið aðrar leiðir erum við í reynd á höttunum eftir sama markmiði og Lýðheilsustöð.

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að hinn 1. mars, á fimmtudaginn, lækkar verð á matvöru vegna lækkunar á virðisaukaskatti á matvæli niður í 7% eins og ég gat um. Sem ég einnig nefndi er þessi skattur núna í tveimur þrepum, annars vegar 14% og hins vegar 24,5%, þannig að um verulega breytingu er að ræða. Frá sama tíma verða vörugjöld sem nú eru lögð á matvæli einnig felld niður, að undanskildum vörugjöldum á sykur og önnur sætindi. Þannig er um að ræða talsverða lækkun á verði á matvöru, mismikla þó.

Þá erum við komin að því sem ég nefndi hér: Hvar skyldi þessi lækkun verða mest? Lækkunin er mest á gosdrykkjum og sykruðum drykkjum. Þótt sykurinn og sætindin séu undanskilin hvað vörugjöldin varðar gildir ekki hið sama um gosið og um sykurdrykki. Þessir vöruflokkar voru í efra skattstiginu og á þeim hvíldu vörugjöld. Nú fjúka sem sagt vörugjöldin og þessir vöruflokkar verða færðir í lægra virðisaukaskattsþrepið.

Sem áður segir fékk efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis erindi frá Lýðheilsustöð þegar frumvarpið var til umfjöllunar í nefndinni í desembermánuði en í bréfi Lýðheilsustöðvar segir m.a., með leyfi forseta:

„Vert er að benda á að rannsóknir sýna að verðnæmni gosdrykkja er töluverð og verðlækkun þeirra hefur mest áhrif á neyslu þeirra þjóðfélagshópa sem almennt er erfitt að ná til með heilsuhvetjandi skilaboðum. Í því samhengi má nefna að unglingar eru mjög næmir fyrir verðbreytingum. Einnig ber að geta þess að næmni þeirra sem neyta mikils magns gosdrykkja er töluverð. Verðbreyting hefur hins vegar minni áhrif á þá sem drekka sykraða gosdrykki í hófi. Hér er því um að ræða aðgerð sem mun hafa neysluhvetjandi áhrif á unglingana okkar og þá sem nú þegar neyta mikils magns gosdrykkja.“

Ég hvatti til þess við umræður um þetta mál á Alþingi í desember sl. að fallið yrði frá þessari ákvörðun og þess í stað farið að ráðum Lýðheilsustöðvar. Ekki fékk það sjónarmið almennan stuðning utan þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Þó voru á því undantekningar. Þingmenn úr röðum sjálfstæðismanna sem eiga bakgrunn í heilbrigðiskerfinu sýndu sjónarmiðum Lýðheilsustöðvar skilning við umræðuna og var svo að skilja á þeim að unnið yrði að því að sannfæra ríkisstjórnina um að breyta um kúrs áður en lögin tækju gildi hinn 1. mars.

Á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í liðinni viku tók ég málið upp að nýju og spurðist fyrir um framgang þess. Þau svör fengust að ekki hefði verið fallist á að verða við óskum Lýðheilsustöðvar hvað þetta snertir. Í því samhengi er rétt að spyrja hver sé eiginlega tilgangurinn með því að setja á fót stofnun sem hefur það hlutverk að ráðleggja stjórnvöldum um stefnu í manneldismálum en hunsa síðan sjónarmið hennar þegar á reynir. Vega þyngra peningahagsmunir gosdrykkjaframleiðenda en heilsufar barna og unglinga?

Ég vitnaði áðan í bréf Lýðheilsustöðvar og ætla, með leyfi forseta, að lesa þetta bréf frá orði til orðs og vekja jafnframt athygli á því að áður en þessari umræðu lýkur, áður en umræðu um þetta frumvarp lýkur, sem þarf að gerast fljótlega vegna þess að frumvarpið þarf að verða að lögum fyrir hinn 1. mars sem áður getur er nauðsynlegt að hæstv. heilbrigðisráðherra mæti í þingsal og svari nokkrum spurningum sem lúta að starfssviði hennar. Ég vek athygli hæstv. forseta á þessari ósk, að áður en umræðu um þetta frumvarp lýkur — ég er ekki að gera kröfu um það núna — og málið kemur til afgreiðslu geri hæstv. heilbrigðisráðherra grein fyrir viðhorfum sínum og sjónarmiðum og svari nokkrum spurningum sem ég kem til með að beina til hennar.

En aftur að álitsgerð Lýðheilsustöðvar. Bréfið er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Á Alþingi hefur verið lagt fram frumvarp er varðar breytingu á lögum um vörugjald og virðisaukaskatt á matvæli, ásamt lögum um gjald af áfengi og tóbaki. Samkvæmt frumvarpinu mun virðisaukaskattur af matvælum lækka úr 14% og 24,5% í 7% auk þess sem vörugjald af matvælum, öðrum en sykri, sykurvörum og súkkulaðivörum, verður fellt niður.

Það vekur athygli að gosdrykkir og sykraðir svaladrykkir eru ekki undanskildir niðurfellingu vörugjalds, líkt og önnur sætindi. Niðurstaðan er því sú að þessir drykkir eru meðal þeirra matvara sem koma til með að lækka hlutfallslega mest þegar bæði kemur til lækkun á virðisaukaskatti úr 24,5% og niðurfelling á vörugjaldi (8 kr./lítra). Þessar aðgerðir samræmast ekki manneldissjónarmiðum sem ættu að vera lögð til grundvallar breytingum sem þessum.

Hins vegar er jákvætt að vatn á flöskum skuli vera undanþegið vörugjaldi. Slíkt gjald ætti aftur á móti að vera áfram á öllum drykkjum með viðbættum sykri.

Íslendingar hafa ekki farið varhluta af offitufaraldrinum sem eykst stöðugt í öllum löndum Evrópu sem og heiminum. Yfir helmingur fullorðinna og fimmti hluti barna hér á landi er yfir kjörþyngd.

Þó að ýmsar jákvæðar breytingar hafi orðið á mataræði hér á landi á undanförnum árum hafa einnig orðið neikvæðar breytingar. Neysla gosdrykkja er gífurleg og drekka unglingsstrákar mest af gosi og sykruðum svaladrykkjum, eða að meðaltali tæpan lítra á dag, og 55% af sykri í fæði þeirra kemur úr gosdrykkjum (Landskönnun á mataræði 15–19 ára, 2002). Þótt unglingsstúlkur drekki minna er neysla gosdrykkja of mikil hjá flestu ungu fólki. Mikið magn gosdrykkja og annarra sykraðra svaladrykkja hefur verið tengt við aukna tíðni ofþyngdar og offitu, ásamt öðrum þáttum, því er mikilvægt að reyna að takmarka neyslu þessara orkuríku drykkja. Niðurstöður rannsóknar á mataræði 9 og 15 ára barna (Rannsóknastofa í næringarfræði, 2003–2004) leiddi í ljós að þriðjungur orku hjá 15 ára börnum kemur úr fæðuflokkum sem gefa mjög lítið af vítamínum, steinefnum og trefjum, þ.e. fæðuflokkum eins og drykkjarvörum (öðrum en mjólk), sælgæti, ís, kökum og kexi. Þessar tölur, sem nefndar hafa verið, greina frá meðaltalsneyslu en breytileiki á milli samfélagshópa er mikill.

Rannsóknir, sem gerðar hafa verið á áhrifum verðbreytinga á fæðu, hafa sýnt að verðlækkanir virka neysluhvetjandi. Vert er að benda á að rannsóknir sýna að verðnæmi gosdrykkja er töluverð og verðlækkun þeirra hefur mest áhrif á neyslu þeirra þjóðfélagshópa sem almennt er erfitt að ná til með heilsuhvetjandi skilaboðum. Í því samhengi má nefna að unglingar eru mjög næmir fyrir verðbreytingum. Einnig ber að geta þess að næmni þeirra sem neyta mikils magns gosdrykkja er töluverð. Verðbreyting hefur hins vegar minni áhrif á þá sem drekka sykraða gosdrykki í hófi. Hér er því um að ræða aðgerð sem mun hafa neysluhvetjandi áhrif á unglingana okkar og þá sem nú þegar neyta mikils magns gosdrykkja.

Þann 16. nóvember sl. var undirritaður í Istanbúl í Tyrklandi sáttmáli milli Evrópulanda og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, um baráttuna við aukna tíðni ofþyngdar og er Ísland aðili að þeim samningi. Í sáttmálanum eru stjórnvöld kölluð til ábyrgðar auk þess sem kallað er eftir enn meiri samstöðu og samvinnu milli allra hagsmunaaðila en verið hefur: opinberra aðila, iðnaðarins og einkamarkaðar, frjálsra félagasamtaka, einstaklinga og fjölskyldna.

Því skýtur skökku við að á sama tíma skuli stjórnvöld hér á landi leggja til breytingar á sköttum og gjöldum sem leiða til lækkunar á verði sykraðra drykkja og þar með væntanlega um leið aukinnar neyslu þeirra.

Virðingarfyllst,

Anna Elísabet Ólafsdóttir, Inga Þórsdóttir, Hólmfríður Þorgeirsdóttir.“

Þær eru allar starfsmenn Lýðheilsustöðvar.

Hér las ég erindi frá Lýðheilsustöð sem efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis barst í desembermánuði þegar Alþingi fjallaði um lækkun á virðisaukaskatti og afnám vörugjalda af matvörum. Þar kemur fram að heilbrigðisyfirvöld hafa að því er ég tel ekki staðið sína vakt. Þess vegna hef ég óskað eftir því að áður en þessari umræðu ljúki, áður en þetta frumvarp verður að lögum sem sýnt er að verður vegna þess að þingið er sameinað að því leyti að við viljum að matarskattslækkunin nái fram að ganga fyrir 1. mars, komi hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir þingið og svari þeim alvarlegu — ég vil ekki kalla það ásökunum — ábendingum sem er að finna í álitsgerð Lýðheilsustöðvar til Alþingis. Mér fyndist það mikill ábyrgðarhluti af hálfu þingsins að ganga þvert á álitsgerð Lýðheilsustöðvar. Lýðheilsustöð er ekki mjög gömul stofnun. Hún er stofnuð samkvæmt lögum sem samþykkt voru á löggjafarþinginu 2002–2003. Og þar er rækilega skilgreint markmið með Lýðheilsustöð.

Hvað segir í 1. gr. þeirra laga? Þar er markmiðið skilgreint og hér segir, með leyfi forseta:

„Markmið laga þessara er að efla lýðheilsu. Með eflingu lýðheilsu er átt við aðgerðir sem ætlað er að viðhalda og bæta heilbrigði þjóðarinnar eða tilgreindra hópa í þjóðfélaginu með skipulegum og viðurkenndum aðferðum.“

Síðan segir í 2. gr. um hvernig hátta skuli stjórnsýslu og yfirstjórn þeirrar stofnunar en í 3. gr. er kveðið á um hlutverk Lýðheilsustöðvar. Þar segir, með leyfi forseta:

„Hlutverk stöðvarinnar er að efla lýðheilsustarf og samræma það, annast fræðslu til almennings um heilbrigði og heilsueflingu í samstarfi og samvinnu við landlækni og aðra eftir því sem við á og styðja starfsemi stofnana og frjálsra félagasamtaka til eflingar lýðheilsu.

Lýðheilsustöð skal vera stjórnvöldum til ráðgjafar um stefnumótun á sviði lýðheilsu. Forgangsröðun verkefna skal vera í samræmi við heilbrigðisáætlun. Stöðin fylgist með árangri af lýðheilsustarfi og stuðlar að rannsóknum á sviði lýðheilsu í samvinnu við landlækni og mennta- og rannsóknastofnanir.

Helstu verkefni Lýðheilsustöðvar eru:

a. að efla lýðheilsustarf í samvinnu við aðra sem að þeim málum starfa,

b. að annast áfengis- og vímuvarnir, manneldi, slysavarnir, tóbaksvarnir og önnur forvarna- og heilsueflingarverkefni á vegum ríkisins,

c. að fylgjast með og koma á framfæri nýrri þekkingu og reynslu sem að gagni mætti koma í lýðheilsustarfi,

d. að meta reglulega árangur af lýðheilsustarfi og bera hann saman við sett markmið,

e. að efla þekkingu og færni þeirra sem starfa að eflingu lýðheilsu,

f. að miðla upplýsingum og fræðslu til landsmanna og einstakra hópa í samfélaginu, eftir því sem við á, í samvinnu við landlækni og aðra,

g. að stuðla að eflingu kennslu og rannsókna á sviði lýðheilsu og samstarfi við háskóla og aðrar menntastofnanir,

h. að beina tillögum til stjórnvalda um aðgerðir til að efla lýðheilsu og forgangsröðun verkefna.

Ráðherra er heimilt að skilgreina verkefni stöðvarinnar á sviði lýðheilsu nánar með reglugerð.“

Þetta er alllangur lagabálkur, en í greinargerð sem fylgdi frumvarpinu segir m.a., með leyfi forseta:

„Helsta markmið heilbrigðisyfirvalda á hverjum tíma er að stuðla að heilbrigði allra landsmanna. Þetta markmið er m.a. að finna í 1. gr. laga um heilbrigðisþjónustu. Hlutverk heilbrigðisstarfsmanna og heilbrigðisstofnana er þó ekki einskorðað við að veita þjónustu þegar eftir henni er leitað vegna heilsuvanda heldur er það miklu víðtækara. Þótt aldrei verði lögð nógu mikil áhersla á ábyrgð fólks á eigin heilbrigði er ljóst að samfélagið og stofnanir þess bera einnig ábyrgð og hafa víðtæk áhrif á heilsufar þjóðarinnar og einstakra hópa á hverjum tíma. Þannig hafa ákvarðanir og aðgerðir stjórnvalda bein og óbein áhrif á líf þegnanna og heilbrigði þeirra þótt áhrifin séu ekki alltaf ljós þegar ákvörðun er tekin.“

Hér eru áhrifin ljós samkvæmt rannsóknum, áhrifin á þeirri lagabreytingu sem nú stendur fyrir dyrum eru ljós. Það er vitað hvað gerist. Menn eru með ákvörðunum sínum að verðstýra óhollustu ofan í ungmenni landsins. Um það snýst málið. Lýðheilsustöð sem er sett Alþingi og stjórnvöldum til ráðgjafar um lýðheilsu og manneldisstefnu biður okkur um að samþykkja þessi lög ekki eins og þau liggja hér fyrir. Þess vegna flytur Vinstri hreyfingin – grænt framboð, þingflokkur VG, þessa breytingartillögu til að koma til móts við þau sjónarmið og þær óskir sem Lýðheilsustöð hefur sett fram. Ég hef lesið hér bréf frá Lýðheilsustöð, ákall til Alþingis og ríkisstjórnarinnar. Ég hef vitnað í lögin sem gilda um Lýðheilsustöð og hvaða markmiðum þessi stofnun á að þjóna. Hún á að sinna rannsóknum, koma niðurstöðum rannsókna á framfæri við stjórnvöld og Alþingi, og það er það sem hún er að gera. Ætlum við ekki að taka neitt mark á því? Á að hlusta meira á eigendur Vífilfells og gosdrykkjaframleiðenda? Er verið að þjóna hagsmunum gosdrykkjaframleiðenda, er það það sem menn eru að gera? Vilja menn hlusta meira á þá sem sækja hagnað í sölu á þessum drykkjum en hina sem vara við óhollustunni? Eru menn að taka afstöðu eftir slíkum línum? Getur það verið að það ráði meira?

Ég trúi ekki öðru en að alþingismenn endurskoði hug sinn þegar þeim verður ljóst bæði hver alvara er á ferðum og hversu eindregin tilmæli þeirra aðila sem við höfum falið að standa vörð um lýðheilsu eru til okkar í þessu máli. Það eru mjög eindregin tilmæli. Ætlum við ekki að hlusta á þau? Ætlum við að hunsa þau? Til hvers í ósköpunum að vera að eyða peningum í þessa Lýðheilsustöð þá? Ég bara spyr, þegar hún kemur með ábendingar, þegar hún framkvæmir annaðhvort sjálf rannsóknir eða leiðir niðurstöðu rannsóknar upp á okkar vinnuborð, ætlum við þá að hunsa þær? (EBS: Ekki horfa á mig.)

Ekki horfa á mig, segir hv. þm. Ellert Schram. Ég er aldeilis ekki að eigna honum neina afstöðu í þessu máli, mér er hún ekki kunn. Ég er að sjálfsögðu fyrst og fremst að beina orðum mínum til ríkisstjórnarinnar að sjálfsögðu. Ég beini orðum mínum til hæstv. heilbrigðisráðherra fyrst og fremst sem á að standa vörð um þau sjónarmið sem Lýðheilsustöð hefur verið gert skylt, lögum samkvæmt, að rækja. Þess vegna mun þessari umræðu ekki ljúka fyrr en hæstv. heilbrigðisráðherra hefur mætt hér í þingið til að skýra hvers vegna ríkisstjórnin ætlar að hunsa tilmæli og óskir frá Lýðheilsustöð um að við föllum frá áformum um að verðstýra óhollustu ofan í ungmenni landsins.

Umræðunni mun ekki ljúka af okkar hálfu fyrr en hæstv. heilbrigðisráðherra hefur gert grein fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar í manneldismálum með hliðsjón af því frumvarpi sem liggur fyrir. Ég mun koma að nýju til umræðunnar, þessi orð voru fyrst og fremst til að fylgja úr hlaði þeim breytingartillögum sem við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum gert við þetta stjórnarfrumvarp og að sjálfsögðu er það ríkisstjórnarinnar að svara fyrir frumvarpið og hvers vegna hún ætlar að slá á ábendingar frá Lýðheilsustöð.