virðisaukaskattur.
Herra forseti. Hv. þingmaður talaði um að hæstv. ríkisstjórn hefði góða stjórn á þessu máli. (Gripið fram í.) Ég verð að segja, frú forseti, að ég tel að hæstv. ríkisstjórn hafi ekki fulla stjórn á nokkru í þessari veröld nema hugsanlega þingflokki sjálfstæðismanna og framsóknarmanna. Þar eru allir menn skrúfaðir. Það sáum við núna á því sem hv. þingmaður sagði. Þessi hv. þingmaður sem yfirleitt er með gleggri mönnum á tölur og annað, hefur ábyggilega fengið hátt í stærðfræði í Menntaskólanum í Reykjavík á sínum tíma, kom hérna og sagði að ég hlyti að gera mér grein fyrir því að ríkisstjórnin gæti ekki nákvæmlega sagt fyrir um afleiðingar lagasetningar á þinginu. Ég er honum sammála um það. En herra trúr, fyrr má nú vera nákvæmnin — eða ónákvæmnin — þegar við stöndum frammi fyrir því að það skeikar helmingi. Látum vera þó að skeiki einhverjum prósentum en samkvæmt því sem er að koma fram núna er líklegt að lækkunin verði ekki 16% heldur allt niður í 8%. Einn hagfræðingur hefur haldið því fram að þetta leiði einungis til 6,5% lækkunar á matarútgjöldum. (Gripið fram í.)
Frú forseti. Það sem eftir stendur í umræðunum milli mín og hv. þm. Birgis Ármannssonar er að hann getur ekki fullyrt að það sem ríkisstjórnin sagði í haust um 16% lækkun hafi verið rétt. Þvert á móti fer hann undan í flæmingi og segir að ekki sé hægt að reikna þetta nákvæmlega út. Eftir liggur þó sú staðreynd að ríkisstjórnin fullyrti hverjar afleiðingar þessarar lagabreytingar yrðu. Það átti að vera lækkun á matarkostnaði heimilanna sem næmi 16% en nú er það eitthvað allt annað þannig að hv. þingmaður hefur þó a.m.k. staðfest að ríkisstjórnin fór ekki með rétt mál í haust. Hún lofaði upp í ermina.