133. löggjafarþing — 79. fundur,  27. feb. 2007.

virðisaukaskattur.

558. mál
[15:47]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Um leið og ég óska eftir því að verða settur á mælendaskrá leyfi ég mér að mælast til þess að hæstv. heilbrigðisráðherra verði gert viðvart þannig að hún geti orðið við ósk minni eða kröfu um að vera viðstödd þegar ég beini spurningum til hennar hér á eftir.