133. löggjafarþing — 79. fundur,  27. feb. 2007.

virðisaukaskattur.

558. mál
[18:37]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það má taka undir ráðleggingar hv. þingmanns um að menn eigi að drekka meira vatn en kannski ekki um að menn spari í mat, eins og þessi könnun sýnir að fólk geri ef það hefur lítið á milli handanna. Breytingar á matarverði geta orðið til þess að fólk fari að geta gert betur við sig í matarinnkaupum. Þetta eru ekki rök í þessu máli í sjálfu sér enda ekki það sem ég ætlaði að ræða við hv. þingmann heldur hitt að hann kom aðeins að tollkvótunum en meiningin er að lækka tolla og til skiptana eru tollkvótar sem á að bjóða upp á að óbreyttum lögum.

Þegar tollkvótar eru boðnir upp þá velja menn tilboð út frá samkeppnisumhverfinu og út frá því hvað matvara kostar á markaði á Íslandi. Tollkvótar sem eru boðnir upp tryggja ekki að lækkun á tollum komi neytendum til góða. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki að koma þurfi þessari vöru til landsins með öðrum hætti en þeim að verðið taki mið af verði á innanlandsmarkaðnum eins og gerist þegar tollkvótar eru boðnir upp. Ég tel ekki líklegt að þessar vörur komi inn á markaðinn með miklum verðmun gagnvart innlendri vöru einfaldlega vegna þess að samkeppnin um innflutninginn á þessum vörum er það mikil að menn bjóða hátt í þetta. 713 krónur voru boðnar í innflutning á kjúklingum í tollkvótauppboði á síðasta ári.