133. löggjafarþing — 79. fundur,  27. feb. 2007.

virðisaukaskattur.

558. mál
[18:41]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það eru til ýmsar leiðir við uppboð á verðmætum og eru ekki alltaf fjármunir sem notaðir eru til að velja á milli þeirra sem sækjast eftir því sem boðið er upp. Það mætti t.d. láta sér detta í hug að þeir sem vildu selja slíka vöru á íslenskum markaði byðu fram hámarksverð á viðkomandi vöru og að valið yrði úr með tilliti til þess hvaða hámarksverð þeir ætluðu að hafa á þeirri vöru á markaðnum. Með þeim hætti gæti arðurinn gengið til neytenda.

Eins og nú háttar til eru þessir tollkvótar, arðurinn, hirtur í ríkissjóð. Ef notaðar eru aðrar aðferðir eins og hafa verið reyndar, t.d. að draga á milli aðila, þá lendir arðurinn hjá þeim sem hlýtur happið og fær tollkvótann í hendur. En það væri hægt að koma honum til neytenda með aðferðum eins og þeim sem ég nefndi.