133. löggjafarþing — 79. fundur,  27. feb. 2007.

virðisaukaskattur.

558. mál
[18:42]
Hlusta

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S) (andsvar):

Frú forseti. Tími verðlagseftirlits er í raun liðinn. Það sem hv. þingmaður er að tala um er verðlagseftirlit. (JÁ: Nei.) Jú, viðkomandi aðili yrði að flytja inn vöruna og selja á ákveðnu verði innan um eintómar vörur sem eru með frjálsa álagningu. Það þýddi það að þessar vörur gætu ekki verið með frjálsa verðlagningu eða álagningu, sem mundi eyðileggja allt það kerfi sem er byggt upp í frjálsu markaðskerfi.

Ég held að slíkt verðlagseftirlit yrði ekki skynsamlegt og yrði algjör afturför frá því kerfi sem við höfum í dag. Það er miklu skynsamlegra að auka kvótann.