sóttvarnalög.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessar ágætu umræður sem hafa orðið hér. Það er rétt sem fram kemur hjá hv. þingmönnum að þetta eru í eðli sínu nánast tvö mál. Þetta eru sóttvarnareglugerðir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar annars vegar og embætti sóttvarnalæknis hins vegar. Svo hefur umræða um útlendinga blandast inn í líka.
Varðandi alþjóðaheilbrigðismálareglugerðirnar heyri ég að flestir þingmenn sem tekið hafa til máls í kvöld álíta að þær séu eðlilegar og eigi rétt á sér, það beri að setja þær o.s.frv. Ég vil vekja athygli á því að þær taka gildi 15. júní í sumar. Reglugerðirnar hafa þá áhrif á íslenskt laga- og reglugerðaumhverfi. Ég vil vekja athygli á því að það eru tímasetningar í því sambandi sem væri mjög æskilegt að við stæðumst. Ég bið því hv. þingmenn í heilbrigðis- og trygginganefnd að hafa það í huga. Enginn hefur gert athugasemdir við þær reglugerðir eða frumvarpsgreinar sem lúta að þeim í umræðunni.
Varðandi embætti sóttvarnalæknis vil ég taka það skýrt fram að í dag erum við með sóttvarnalækni í landlæknisembættinu. Í frumvarpinu er einungis verið að tala um að skera embætti sóttvarnalæknis frá landlæknisembættinu þannig að það verði sérembætti. Það er fært fram vegna þess að samkvæmt gildandi sóttvarnalögum ber landlæknisembættið ábyrgð á framkvæmd sóttvarna. Þar segir jafnframt að við landlæknisembættið skuli starfa sóttvarnalæknir sem beri ábyrgð á sóttvörnum. Þetta er óskýr stjórnsýslustaða þannig að það er eðlilegt að þetta sé skýrt. Sú leið sem ég tel rétt að fara er að skilja þarna á milli þannig að sóttvarnalæknisembættið mundi bera ábyrgð á sóttvörnum undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra.
Þetta er breyting sem ég heyri að nokkrir þingmenn sem tekið hafa til máls í umræðunni hafa efasemdir um og hafa dregið það fram að þeir telji ekki eðlilegt að gera þetta. Einn hv. þingmaður, Þuríður Backman, taldi að það væri kannski hægt að skýra betur stjórnsýslulega stöðu innan landlæknisembættisins án þess að gera þetta að sjálfstæðu embætti, þ.e. sóttvarnalæknisembættið. Ég tel eðlilegra að skera þarna alveg á milli.
Ég vil taka það fram af því að það kom fram í umræðunni hvort það gætu verið einhverjir persónulegir hnökrar á milli aðila, að það er ekki. Mjög hæfir aðilar eru bæði í hlutverki sóttvarnalæknis og hlutverki landlæknis og sinna þeim störfum með prýði. Málið er ekki sett fram á slíkum grunni. Þetta er einungis til að skýra stjórnsýslulega stöðu. Sóttvarnir eru það mikilvægar, eins og hlutverk landlæknisembættisins, að það er rétt að hafa stjórnsýsluna algjörlega klára, hver ber ábyrgðina. Þess vegna er málið sett fram.
Ég hef hins vegar skilning á því að þingmenn vilji kynna sér þetta í nefndinni. Það eru fáir dagar til þingloka og ég vek athygli á því að það eru ekki neinar tímatakmarkanir á þessum hluta frumvarpsins eins og hinum. Hv. heilbrigðis- og trygginganefnd verður því að meta það við vinnslu málsins hvað hún kemst langt í vinnslu þess á þessum stutta tíma, en ég vek athygli á því að það eru tímatakmarkanir á alþjóðaheilbrigðismálareglugerðinni sem er annar tveggja hluta frumvarpsins.
Varðandi umræðuna um útlendinga vil ég taka fram að í frumvarpinu er ekki verið að breyta verklagsreglum sóttvarnalæknis eins og mér finnst sumir þingmenn hafa gefið í skyn. Það er ekki verið að setja á annað eftirlit en það sem er í dag. Það eftirlit sem við höfum í dag á vegum sóttvarnalæknis eða með útlendingum sem koma hingað til að sækja sér vinnu, nám eða annað slíkt er prýðilega gott. Að mínu mati er ekkert upp á það að klaga. Þær kröfur sem nú eru gerðar eru því eðlilegar og það er vel staðið að þeim. Frumvarpið breytir ekki neinu í því sambandi. Ég vil taka það skýrt fram af því að hv. þingmenn hafa gefið þetta í skyn eins og við værum að fara að breyta reglunum, að þær mundu breytast í eðli sínu ef frumvarpið yrði samþykkt óbreytt. Svo er alls ekki.
Varðandi umræðuna um útlendinga vil ég segja að 10% af vinnumarkaðnum í dag á Íslandi eru útlendingar sem fylla í þær stöður sem eru á vinnumarkaði. Meðal annars vegna góðs eftirlits hefur ekki borið á því að hér hafi stungið sér niður neinir nýir sjúkdómar. Við sjáum ekki hækkanir á alnæmi, berklum eða neinu öðru slíku sem menn draga oft í umræðuna þegar þessi mál eru rædd. Eftirlitið er því gott í dag. Ég vil taka þetta mjög skýrt fram, virðulegi forseti. Auðvitað er ekki hægt að útiloka að hér stingi sér niður sjúkdómar, það er aldrei hægt að útiloka það, en við erum með mjög gott kerfi til að minnka líkurnar verulega og halda þeim í lágmarki en ef eitthvað slíkt kæmi upp á mundum við auðvitað bregðast við því.
Berklar hafa verið nefndir og ákveðnir hópar sem koma frá löndum þar sem þeir eru útbreiddir eru sérstaklega skoðaðir gagnvart berklum og það er unnið eftir lista … (ÖS: Var það ekki það sem formaður Frjálslynda flokksins sagði?) Það eru sem sagt lönd sem eru á lista eða samkvæmt verklagsreglum sóttvarnalæknis. Fólkið sem greinist fær lyf, það er því hagur þeirra sem koma frá umræddum löndum ef þeir greinast að fá lyf og þjónustu. Ég vil því draga það fram að við höfum ekki orðið vör við að neitt hafi farið úr skorðum með komu útlendinga til landsins.
Ég virði það sem hv. þingmenn hafa sagt. Frumvarpið er tiltölulega seint fram komið. Það er rétt, það er lítið eftir af þinginu og ég bendi á að ákveðnar tímatakmarkanir gilda sem væri mjög gott að standast varðandi alþjóðaheilbrigðismálareglugerðina.