133. löggjafarþing — 79. fundur,  27. feb. 2007.

flutningur á starfsemi Fiskistofu.

635. mál
[20:26]
Hlusta

Flm. (Ólafur Níels Eiríksson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek alveg undir það að sjómenn og fiskvinnslufólk er mjög duglegt fólk, en ég hef trú á því að fólk sem vinnur á Fiskistofu í dag hafi nóg að gera. Ég tel nauðsynlegt að vera með eftirlitið. Þetta er ein af stærstu útflutningsgreinum þjóðarinnar. Eins og Fiskistofa er byggð upp og starfar í dag tel ég alveg hægt að flytja stofuna út á landsbyggðina. Í samhengi við þetta væri kannski líka hægt að skoða hvort hægt væri að minnka eftirlitið eða möguleika á því að draga úr því. En ég tel að þarna fari fram mikið starf og því hlýtur að vera þörf fyrir eftirlit.